Fréttir

true

Eldsmíðahátíð er hafin í Görðum

Um þessa helgi fer Norðurlandameistaramótið í eldsmíði fram við Byggðasafnið á Akranesi. Það verður nóg um að vera fyrir nýgræðinga í greininni og allt upp í helstu eldsmiði Norðurlandanna sem etja kappi fram á sunndag. Keppt verður í þremur flokkum og eru keppendur alls fimmtán talsins. Þrír keppa í hverjum flokki frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð,…Lesa meira

true

Starfslok vinnuskólans á Akranesi

Í dag var síðasti dagur Vinnuskólans á Akranesi þetta sumarið enda skólar brátt að hefja vetrarstarfið. Af því tilefni var sprell og grill í skógræktinni í morgun eins og meðfylgjandi myndir bera með sér, en þær sendi Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Skessuhorni.Lesa meira

true

Telur ekki boðlegt hvernig staðið er að umferðarstýringu um hjáleið

Eins og íbúar í Borgarnesi hafa orðið varir við standa nú yfir framkvæmdir við Borgarbraut á milli Böðvarsgötu og Egilsgötu. Verið er að endurnýja fráveitulagnir, hitaveitu- og vatnslagnir ásamt því sem yfirborð götu og gangstíga verður endurnýjað. Gatan er því lokuð og umferð beint um eina hjáleið sem sérstaklega var lögð vegna þessa; yfir Kveldúlfsvöll…Lesa meira

true

Sambland vígamennsku og bókmennta

Á morgun, laugardag, verður boðað til árlegrar Sturluhátíðar á Staðarhóli og í félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ. Það er Sturlufélagið sem stendur að hátíðinni og Einar K. Guðfinnsson fyrrverandi alþingismaður er formaður þess. Hann segir samfélagið á Sturlungaöld hafa verið ótrúlega blöndu af vígamennsku og fræðimennsku. „Það var ein af þverstæðum 13. aldarinnar að hún einkenndist…Lesa meira

true

Vænir fiskar að veiðast í Hvolsá og Staðarhólsá

Vestur í Dölum og í Borgarfirði eru árnar nú vatnsmiklar eftir miklar rigningar að undanförnu. Enn er spáð rigningu næstu daga. Laxveiðimenn gráta ekki mikið vatn. „Það gengur ágætlega hjá okkur en árnar eru vatnsmiklar eftir miklar rigningar,“ sagði Þröstur Reynisson sem var við veiðar í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum. Hann var sömuleiðis við…Lesa meira

true

Rut ráðin sem þjónustustjóri í Þjóðgarðinn

Rut Ragnarsdóttir hefur verið ráðin sem þjónustustjóri í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Rut er mannfræðingur að mennt með viðskiptafræði sem aukagrein, diplóma í markaðsfræði og APME gráðu í verkefnastjórnun. Megin hlutverk þjónustustjóra er umsjón með rekstri nýrrar þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi og gestastofu á Malarrifi, ábyrgð á þjónustu við gesti, viðburðastjórnun og gerð og miðlun fræðslu- og upplýsingaefnis.…Lesa meira

true

Jaðarsbakkalaug lokuð í viku vegna viðhalds

Vegna árlegs viðhald verður Jaðarsbakkalaug á Akranesi lokuð laugardaginn 13. ágúst til og með föstudagsins 19. ágúst. Sundlaugin verður opnuð aftur laugardaginn 20. ágúst. Þreksalurinn verður lokaður laugardaginn 13. ágúst og sunnudaginn 14. ágúst. Opið verður frá klukkan 7-19 mánudaginn 15. ágúst til miðvikudagsins 17. ágúst en ekki verður hægt að nota búningsklefa. Lokað fimmtudaginn…Lesa meira

true

Blokk á hjólum á rúntinum á Reykhólum

Ferðabíll var á tjaldstæðinu við Grettislaug á Reykhólum á dögunum. Á þessum bíl ferðast 17 manns og hafa líklega ekki komið fleiri á einum bíl, að sögn Jóns Kjartanssonar umsjónarmanns tjaldstæðisins. Frá Reykhólum var för hópsins heitið vestur á Snæfellsnes. Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að flesta daga í sumar hafi verið fullt á tjaldstæðinu…Lesa meira

true

Daniel Ingi sló met Sigga Jóns

Daniel Ingi Jóhannesson varð 1. ágúst síðastliðinn yngsti leikmaður ÍA í sögunni til að spila leik í efstu deild karla er hann kom inn á í leik ÍA og Breiðabliks á 85. mínútu í Bestu deild karla í knattspyrnu. Metið átti Sigurður Jónsson en hann var 15 ára og 298 daga gamall þegar hann spilaði…Lesa meira

true

Reykhóladagar verða um helgina

Reykhóladagar verða haldnir dagana 12.-14. ágúst. Dagskráin hefst kl. 13 á morgun, föstudag, með afmælishátíð leikskólans Hólabæjar, en skólinn fagnar 30 ára afmæli og heldur veislu af því tilefni. Þar verður Jörgen Nilsson með gögl (juggling) kennslu. Við tekur bátabíó fyrir börn á Báta- og hlunnindasýningunni sem helguð er fuglum, bátum og náttúrunytjum Breiðafjarðar og…Lesa meira