
Ferðabíllinn tekur alls 17 manns. Ljósm. reykholar.is
Blokk á hjólum á rúntinum á Reykhólum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ferðabíll var á tjaldstæðinu við Grettislaug á Reykhólum á dögunum. Á þessum bíl ferðast 17 manns og hafa líklega ekki komið fleiri á einum bíl, að sögn Jóns Kjartanssonar umsjónarmanns tjaldstæðisins. Frá Reykhólum var för hópsins heitið vestur á Snæfellsnes.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að flesta daga í sumar hafi verið fullt á tjaldstæðinu á Reykhólum og sama má segja um tjaldstæðin á Miðjanesi og í Djúpadal en á þessum stöðum er afbragðs aðstaða. Um helgar hefur sú staða komið upp að ekki hafa verið nægilega margir rafmagnstenglar á tjaldstæðunum en það flokkast nú sennilega sem lúxusvandamál.",
"innerBlocks": []
}