Fréttir

true

Þorsteinn bikarmeistari í A flokki hjólreiða

Þorsteinn Bárðarson hjólreiðamaður frá Rifi varð bikarmeistari í karlaflokki A sem er efsti styrkleikaflokkur í hjólreiðum. Þorsteinn tók þátt í fjórum bikarmótum í sumar þar sem hann sigraði tvisvar sinnum og lenti í öðru og þriðja sæti í hinum. Notaður er bestur árangur úr þremur keppnum af fjórum og hlaut hann alls 140 stig sem…Lesa meira

true

Alexandrea Rán Evrópumeistari

Í síðustu viku varð Borgnesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir Evrópumeistari í klassískri bekkpressu á Evrópumóti í bekkpressu og klassískri bekkpressu sem haldið var í Búdapest í Ungverjalandi. Hún lyfti 110 kg sem var 15 kg meira en annað sætið en Alexandrea á núverandi Íslandsmeistaratitil í sömu grein, með sömu þyngd. Einnig hafnaði Alexandrea í öðru sæti…Lesa meira

true

Rannsaka mannabein sem fannst á Snæfellsnesi

Erlendur ferðamaður fann í síðustu viku mannabein á Snæfellsnesi. Beinið sem um ræðir er stakt kjálkabein og fannst á stað sem jarðvegur hafði nýlega verið fluttur á. Fornleifafræðingar, kennslanefnd og rannsóknardeild lögreglunar á Vesturlandi vinna að rannsókn málsins. Fréttavefurinn ruv.is greindi frá. Til rannsóknar er meðal annars hvort jarðvegurinn sem fluttur var þangað sem beinið…Lesa meira

true

Fjögur prósent án vinnu

Hlutfall atvinnulausra var 4,0% í júní síðastliðnum samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,8% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 76,6%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli mánaða á meðan hlutfall starfandi dróst saman um 1,4 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur lækkað um 0,7 prósentustig síðustu sex mánuði á meðan leitni hlutfalls starfandi…Lesa meira

true

Gosstöðvarnar lokaðar til morguns

Eldgos hófst á um 300 metra langri sprungu í Meradölum á Reykjanesskaga laust eftir hádegi þann 3. ágúst síðastliðinn. Sprungan er u.þ.b. einn kílómetri norðaustur af megingígnum sem var virkur í gosinu 2021. Gosið byrjaði mun kröftugar en gosið sem hófst í mars í fyrra. Meðalhraunflæði fyrstu tímana eftir að sprungan opnaðist var 32 rúmmetrar…Lesa meira

true

Skallagrímur að missa af úrslitakeppni 4. deildar

Hvíti riddarinn og Skallagrímur mættust í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram að Varmá í Mosfellsbæ. Fyrir viðureignina var Hvíti riddarinn með 31 stig í efsta sæti riðilsins og Skallagrímur með 27 stig í þriðja sætinu, sæti á eftir liði Árbæjar sem var með 28 stig. Tvö lið…Lesa meira

true

Úrslit í samkeppni Hvalfjarðardaga kunngerð

Úrslit í ljósmyndasamkeppni og skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2022 liggja nú fyrir. Þemað í ljósmyndakeppninni var „Mannlíf í Hvalfjarðarsveit.“ Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að menningar- og markaðsnefnd hafi verið sammála um að mynd sem Sunna Rós Svansdóttir tók af börnum að leik á góðum sumardegi á Þórisstöðum bæri af í ljósmyndasamkeppninni þar sem fanga átti mannlíf…Lesa meira

true

Víkingur Ó og Höttur/Huginn gerðu jafntefli

Víkingur Ólafsvík tók á móti liði Hattar/Hugins á Ólafsvíkurvelli í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og skiptu liðin bróðurlega með sér stigunum, lokatölur 1-1. Brynjar Vilhjálmsson kom Víkingi yfir í byrjun seinni hálfleiks með sínu fjórða marki í deildinni í sumar en Stefán Ómar Magnússon jafnaði metin fyrir gestina á 69. mínútu og…Lesa meira

true

Reynir tapaði fyrir KFB

KFB og Reynir Hellissandi mættust á Álftanesi í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á föstudaginn og unnu heimamenn í KFB stórsigur, 4-1. Það voru þó gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins strax á fjórðu mínútu með marki frá Benedikt Osterhammer Gunnarssyni. Reynismenn urðu síðan fyrir áfalli þegar lykilmaður í vörn þeirra, Kristófer James…Lesa meira

true

Tveggja ára hélt listsýningu

Jóhanna Ingibjörg Jónsdóttir er tveggja ára upprennandi listakona sem býr í Stykkishólmi. Um verslunarmannahelgina gerði hún sér lítið fyrir og málaði málverk á pallinum heima hjá sér sem hún hengdi svo upp til sýnis fyrir gesti og gangandi að líta á. Sólrún Ösp Jóhannsdóttir, móðir Jóhönnu, sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd frá sýningunni.Lesa meira