
Meðfylgjandi mynd var tekin á flugi yfir gosstöðvarnar síðastliðið miðvikudagskvöld, daginn sem gos hófst. Ljósm. Þórarinn Jónsson, Thor Photography.
Gosstöðvarnar lokaðar til morguns
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eldgos hófst á um 300 metra langri sprungu í Meradölum á Reykjanesskaga laust eftir hádegi þann 3. ágúst síðastliðinn. Sprungan er u.þ.b. einn kílómetri norðaustur af megingígnum sem var virkur í gosinu 2021.\r\n\r\nGosið byrjaði mun kröftugar en gosið sem hófst í mars í fyrra. Meðalhraunflæði fyrstu tímana eftir að sprungan opnaðist var 32 rúmmetrar á sekúndu sem er um 4-5 sinnum meira en var í byrjun gossins 2021. Strax daginn eftir, 4. ágúst, hafði meðalrennsli hraunsins dottið niður í 18 rúmmetra á sekúndu.\r\n\r\nLokað hefur verið að gosstöðvunum síðan klukkan fimm í gærmorgun, 7. ágúst, vegna veðurs, en hvasst hefur verið á svæðinu, lélegt skyggni og mikil rigning. Lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér tilkynningu í morgun þess efnis að ekki yrði opnað fyrir gosstöðvarnar í dag. Á meðan á lokuninni stendur eru framkvæmdir á svæðinu. Þar eru nú stórvirkar vinnuvélar og unnið er að því að gera gott aðgengi að gosstöðvunum og laga gönguleiðir. Stefnt er að því að opna fyrir aðgengi að gosstöðvunum klukkan 10 í fyrramálið.\r\n\r\nEldgosið trekkir að innlenda og erlenda ferðamenn en bókanir á flugum til Íslands, bæði með flugfélaginu Icelandair og Play, tóku kipp stuttu eftir að greint hafði verið frá gosinu í fjölmiðlum. Þá hækkuðu hlutabréf í Icelandair um 7% á einungis nokkrum klukkustundum eftir að gosið hófst. Ætla má að Grindvíkingar séu í óða önn að undirbúa sig fyrir mikinn ferðamannastraum næstu daga.\r\n\r\nGasmengun vegna brennisteinstvíoxíðs er viðvarandi við gosstöðvarnar en er breytileg eftir veðri og landslagi. Hlutfall brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti á Vesturlandi getur einnig hækkað og loftgæði versnað vegna eldgossins í Merardölum. Á vefsíðu Veðurstofunnar er gasdreifingarspá þar sem hægt er að sjá hvernig gasið dreifir sér á hverjum klukkutíma og áhrifasvæði gass á næstu sex klukkutímum og á næstu 24 klukkutímum.",
"innerBlocks": []
}