{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Erlendur ferðamaður fann í síðustu viku mannabein á Snæfellsnesi. Beinið sem um ræðir er stakt kjálkabein og fannst á stað sem jarðvegur hafði nýlega verið fluttur á. Fornleifafræðingar, kennslanefnd og rannsóknardeild lögreglunar á Vesturlandi vinna að rannsókn málsins. <a href=\"https://www.ruv.is/frett/2022/08/08/mannabein-fannst-a-snaefellsnesi\">Fréttavefurinn ruv.is greindi frá.</a> Til rannsóknar er meðal annars hvort jarðvegurinn sem fluttur var þangað sem beinið fannst hafi verið nálægt þekktum grafreit, þá er verið að vinna að því að aldursgreina beinið og bera frekari kennsl á það eftir því sem hægt er. Ekki liggur fyrir hversu gamalt beinið er, en mögulega flokkast það til fornleifa.",
"innerBlocks": []
}
Rannsaka mannabein sem fannst á Snæfellsnesi - Skessuhorn