Verðlaunamynd Sunnu Rósar Svansdóttur. Ljósm. af hvalfjarðarsveit.is

Úrslit í samkeppni Hvalfjarðardaga kunngerð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Úrslit í ljósmyndasamkeppni og skreytingakeppni Hvalfjarðardaga 2022 liggja nú fyrir. Þemað í ljósmyndakeppninni var „Mannlíf í Hvalfjarðarsveit.“ Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að menningar- og markaðsnefnd hafi verið sammála um að mynd sem Sunna Rós Svansdóttir tók af börnum að leik á góðum sumardegi á Þórisstöðum bæri af í ljósmyndasamkeppninni þar sem fanga átti mannlíf í sveitarfélaginu.\r\n\r\nÍ skreytingakeppninni var þemað „Fuglahræður“ og valdi dómnefnd fuglahræðuna hjá Sólrúnu Jörgensdóttur og Hreini Gunnarssyni sem vinningshafa. Dómnefnd skipuð Guðfinnu Indriðadóttur, Baldri Ketilssyni og Ernu Elvarsdóttur skoðaði margar skemmtilegar fuglahræður og valið því erfitt. Að mati dómnefndar þótti fuglahræða Sólrúnar og Hreins bera af sem hræða sem stæði undir nafni og líkleg til að hræða fugla og aðra óviðkomandi úr garði og túnum.\r\n\r\nSíðastliðinn fimmtudag afhentu Birkir Guðlaugsson formaður og Elín Ósk Gunnarsdóttir, varaformaður menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar, verðlaun sem voru fyrir ljósmyndasamkeppnina máluð mynd á stein frá Josefinu Margaretu Morell og verðlaun fyrir skreytingakeppnina var gjafabréf á Grand Hótel Reykjavík, gisting og morgunverður fyrir tvo.",
  "innerBlocks": []
}
Úrslit í samkeppni Hvalfjarðardaga kunngerð - Skessuhorn