
Bæjarhátíðin Heim í Búðardal var vel heppnuð, enda margt í boði fyrir fólk á öllum aldri. Að sögn Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Dalabyggð, fór hátíðin sérlega vel fram og aðsókn fór fram úr björtustu vonum. Dalamaður ársins var valinn og féll sá titill í skaut Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld, athafnakonu og dýravini í Hólum…Lesa meira








