
Í gær hófst Landsmót hestamanna á Gaddastaðaflötum með forkeppni í barna- og unglingaflokki. Nú þegar er talsvert af gestum mætt í brekkurnar og mikil stemning í röðum hestaáhugafólks eftir fjögurra ára landsmótahlé. Eftir forkeppni í barnaflokki er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker frá Skáney langefst á hestinum Þyt með einkunnina 8,798. Sá árangur hefði dugað þeim…Lesa meira








