Fréttir

true

Gísli Jónsson bauð lægst í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum

Í síðustu viku voru opnuð tilboð í bílabjörgun í Hvalfjarðargöngum fyrir árin 2022 til 2024. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á sléttar 70 milljónir króna. Gísli Stefán Jónsson ehf. á Akranesi var lægstbjóðandi með 79.980.000 krónur sem er um 14% yfir kostnaðaráætlun. Vaka hf. í Reykjavík bauð talsvert hærra, 187.673.000 krónur en það er um 168% yfir…Lesa meira

true

Endurnýjun A og B deilda HVE ganga vel

Framkvæmdir við endurnýjun A og B deilda Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi ganga vel. A deildin, lyflækningadeild, er mun lengra komin og er gert ráð fyrir að deildin verði tilbúin og afhent til notkunar um miðjan desember. Þá er reiknað með að B deild verði tilbúin í lok febrúar á næsta ári. Að sögn Halldórs B…Lesa meira

true

Bilun í Borgarneslínu II

Rafmagnstruflanir verða frá Ausu í Andakíl að Seleyri frá klukkan 17:00 í dag til kl 22:00 vegna bilunar á línu við hitaveitutanka. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Andlát – Guðjón Ingvi Stefánsson fv. framkvæmdastjóri SSV

Guðjón Ingvi Stefánsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er látinn, 82 ára að aldri. Guðjón var fæddur og uppalinn í Hveragerði. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1959 og verkfræðingur frá DTH í Kaupmannahöfn 1968. Eftir nám starfaði hann um tíma sem verkfræðingur hjá Hochtief við hafnargerð í Straumsvík og hjá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.…Lesa meira

true

Skallagrímur með ósigur gegn Fjölni

Skallagrímur gerði sér ferð í Grafarvoginn á föstudagskvöldið og lék gegn Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta en Skallagrímur var með fjögurra stiga forystu þegar honum lauk, 21:25. Fjölnismenn náðu að jafna um miðjan annan leikhluta og höfðu tveggja stiga forystu í hálfleik, 39:37. Fjölnismenn…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu botnbaráttuslagnum

Skallagrímur heimsótti lið Breiðabliks í Kópavoginn í gærkvöldi í Subway deild kvenna í körfuknattleik. Fyrir leikinn voru liðin í tveimur neðstu sætum deildarinnar, Breiðablik í sjöunda sæti með einn sigurleik og Skallagrímur í neðsta sæti án sigurs. Breiðablik var sterkari í upphafi leiks og leiddi 7:2 eftir þriggja mínútna leik en Skallagrímur náði að koma…Lesa meira

true

Tónar á ferð – ný söngbók eftir Valgerði Jónsdóttur

Út er komin bókin „Tónar á ferð“ – Söngbók eftir tónlistarkonuna Valgerði Jónsdóttur, Bæjarlistamann Akraness 2021. Í bókinni er að finna nótur að lögum sem Valgerður hefur samið á undanförnum árum og útsett fyrir barna- og ungmennakóra. Valgerður er einnig höfundur flestra af ljóðunum við lögin en einnig eru ljóð eftir Brynju Einarsdóttur, Guðmund Kristjánsson,…Lesa meira

true

Gunnar Már flutti Happy Xmas (War Is Over)

Sjómaðurinn, vélstjórinn og bóndasonurinn Gunnar Ármannsson opnaði sjötta glugga jóladagatals Skagamanna, Skaginn syngur inn jólin. Gunnar Már flutti lagið Happy Xmas (War Is Over) eftir John Lennon með íslenskum texta en höfundur hans er óþekktur. Eru ábendingar um höfundinn vel þegnar. Sjá hér   Lesa meira

true

Drífa er tvöfaldur heimsmeistari í badminton

Skagakonan Drífa Harðardóttir átti góðu gengi að fagna á heimsmeistaramóti öldunga í badminton sem fram fór á Spáni um helgina. Fyrst varð Drífa heimsmeistari í tvenndarleik í flokki 40-44 ára ásamt Jesper Thomsen frá Danmörku. Þau sigruðu par frá Englandi 21-19 og 21-10. En hún átti eftir að bæta enn betur við gullmedalíurnar. Ásamt Elsu…Lesa meira

true

Ný stjórn Dreyra og reiðhöllin brátt vígð

Nýverið urðu stjórnarskipti í hestamannafélaginu Dreyra sem á starfssvæði sitt á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Nýr formaður er Ása Hólmarsdóttir en hún tekur við af Fjólu Lind Guðnadóttur. Varaformaður stjórnar er Sigurður Arnar Sigurðsson og aðrir stjórnarmenn Óttar Ellingsen, Þorsteinn Hörður Benónýsson og Ásta Marý Stefánsdóttir. Varamenn í stjórn eru Hjálmar Þór Ingibergsson og Viktoría…Lesa meira