Fréttir

true

Jólin allsstaðar í fimmta glugga af Skaginn syngur inn jólin

Tuttugu og tvö börn á sjöunda ári á yngsta stigi í Tónlistarskólanum á Akranesi eru flytjendur atriðisins í fimmta þætti af Skaginn syngur inn jólin en glugginn var opnaður í morgun. Þau eru nemendur í forskóla II í TOSKA. Syngja þau lagið Jólin allsstaðar við fiðluundirleik Úlfhildar (Úllu) Þorsteinsdóttur en hljómsveit hússins undir stjórn Birgis…Lesa meira

true

Björgunarsveitir fá fjölda útkalla vegna foks – þau fyrstu í Borgarnesi

Fyrsta útkall björgunarsveita í dag vegna óveðurs sem nú gengur yfir landið barst í Borgarnesi rétt fyrir klukkan ellefu. Þar var tilkynnt um fok á þakplötum, þakklæðningum og lausamunum. Um klukkan tólf bætti töluvert í vind og hafa björgunarsveitir víða á suðvesturhorni landsins verið kallaðar út, eða á Kjalarnesi, Reykjavík, Grindavík, Suðurnesjum, Mosfellsbæ og Hafnarfirði.…Lesa meira

true

Tólf tilfelli omikron hér á landi tengjast öll Akranesi

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir upplýsti í útvarpsfréttum nú í hádeginu að tólf hafa nú greinst með omíkron afbrigði kórónaveirunnar hér á landi og eru öll tilfellin enn bundin við Akranes. Hinir smituðu eru með tiltölulega væg einkenni. „Þetta afbrigði er að greinast víða og eftir því sem ég sé í tilkynningum sem berast erlendis frá þá…Lesa meira

true

Hvassviðri spáð til kvölds

Gul viðvörun vegna hvassviðris er í gildi um allt vestanvert landið og miðhálendið til kvölds. Við Breiðafjörð verður suðaustan 18-25 m/s, en hvassast í vindstrengjum við fjöll og hviður um 40 m/s á þeim slóðum, t.d. á Snæfellsnesi. Rigning verður á láglendi en mögulega snjókoma á fjallvegum og gæti færð spillst. Í ábendingu frá Vegagerðinni…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris suðvestanlands í fyrramálið

Á morgun, sunnudag er spáð suðaustan stormi suðvestanlands og er gul viðvörun í gildi. Reiknað með snörpum vindhviðum allt að 40-45 m/s frá um klukkan 9 í fyrramálið og fram undir kvöld á utanverðu Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á Snæfellsnesi. Um tíma verður einnig bálhvasst við Eyjafjöll. Á Hellisheiði og í Þrengslum verður blindbylur frá…Lesa meira

true

Mokveiða stórþorsk á Dohrnbankanum

,,Íslenskir togaraskipstjórar höfðu lengi rætt um að kanna þetta svæði en það gerðist ekkert í málinu fyrr en Ásgeir á Björgvini EA lét á það reyna nú í aflatregðunni á heimamiðum. Árangurinn var ævintýralegur og ævintýrið virðist bara halda áfram. Við erum búnir að fara tvo túra og aflinn er samtals um 310 tonn.“ Þetta…Lesa meira

true

Geir Harðar opnaði fjórða gluggann

Fjórði gluggi jóladagatals Skagamanna, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var Skagamaðurinn Geir Harðarson sem flutti frumsamið lag, Jólasaga, en hann fékk hugmyndina að laginu fyrir nokkrum árum síðan. Geir ólst upp við rokk eins og KISS, Led Zeppelin og Utangarðsmenn og það blundar alltaf í honum rokkarinn eins og heyrist í…Lesa meira

true

Útvarp Óðal fer í loftið á mánudaginn

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskóla Borgarness, Útvarp Óðal, fer í loftið á mánudagsmorguninn næsta og standa útsendingar yfir í fimm daga frá klukkan 10-23 en lýkur klukkan 18.30 á föstudaginn. Fyrir marga er Útvarp Óðal órjúfanlegur hluti af jólahátíðinni og er dagskráin í ár ekki af verri endanum. „Fyrir marga er Útvarp Óðal fastur liður í…Lesa meira

true

Jólastemning á Erpsstöðum á sunnudaginn

„Við ætlum að vera með opið á sunnudaginn og vera með notalega stemningu. Nokkrir aðilar verða með bás hjá okkur og pláss fyrir fleiri að vera með. Verðum með tilboð á ýmsum vörum. Úrval af jólatrévöru frá Ástu Ósk, Skyrgámur mætir á svæðið klukkan 16 og heilsar upp á gesti,“ segir í tilkynningu frá Rjómabúinu…Lesa meira

true

Brynjar framlengir við Víking

Víkingur Ólafsvík skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Brynjar Vilhjálmsson 1. desember síðastliðinn. Brynjar er fæddur 2000 og uppalinn í Ólafsvík og getur leyst ýmsar stöður á vellinum. Hann lék 14 leiki fyrir Víking í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.Lesa meira