Fréttir

true

Viðurkenningar fyrir falleg hús og umhverfi á Akranesi – myndasyrpa

Síðastliðinn fimmtudag voru afhentar umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021. Ákveðið var að hafa sama hátt á og í fyrra að fulltrúar úr Skipulags- og umhverfisráði fóru og afhentu viðurkenningar fyrir utan heimili fólks. Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi og formaður nefndarinnar stýrði dagskrá, ásamt Guðríði Sigurjónsdóttur nefndarmanni og Sigurði Páli Harðarsyni sviðsstjóra. Þess ber að geta…Lesa meira

true

Óska eftir bakvörðum vegna smita í búsetuþjónustu

Á föstudagskvöldið fékk félagsþjónusta Borgarbyggðar staðfestingu á Covid-19 smitum í búsetuþjónustu og í hæfingarstaðnum Öldunni. „Vegna þessara smita fara flestir starfsmenn, leiðbeinendur og skjólstæðingar ýmist í sóttkví eða smitgát. Við erum búin að tryggja mönnun í dag og flestir sem eru í smitgát eða sóttkví munu komast í Covid-19 próf í dag,“ skrifaði Þórdís Sif…Lesa meira

true

Tuttugu í einangrun og 146 í sóttkví á Vesturlandi

Vaxandi fjöldi smitaðra er nú í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi. Lögreglan á Vesturlandi er hætt að birta tölfræði skipt upp eftir heilsugæsluumdæmum, en vísar á Covid-19 vefinn. Þar má nú sjá að 20 manns eru í einangrun á Vesturlandi með Covid-19 og 146 í sóttkví. Á landinu öllu er 653 í einangrun og 1.418…Lesa meira

true

Minnast Hallbjargar með tónleikum á Vökudögum

Rótarýklúbbur Akraness og Tónlistarskóli Akraness minnast Hallbjargar Bjarnadóttur með tónleikum sem fara fram á Vökudögum á Akranesi fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi. Í byrjun þessa árs fékk Rótarýklúbbur Akraness styrk úr verkefnasjóði Rótarý á Íslandi. Styrkurinn er til að kosta tónleika til minningar um Hallbjörgu Bjarnadóttur söngkonu. „Hallbjörg var frumkvöðull í djasstónlist á Íslandi. Rödd hennar…Lesa meira

true

Covid smit í leikmannahópi Skallagríms

Leik Hattar frá Egilsstöðum og Skallagríms sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað vegna smits í herbúðum Skallagríms. Um eru að ræða 3-4 leikmenn sem eru orðnir veikir að sögn KKÍ og því var ákveðið í kjölfarið að fresta leiknum. Nýr leiktími verður ákveðinn eins fljótt og hægt verður að spila en…Lesa meira

true

Verðlaun veitt fyrir fallegt umhverfi og snyrtimennsku

Í gær veitti Borgarbyggð árlegar viðurkenningar í umhverfismálum. Það er umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem hefur umsjón með verkefninu; kallar eftir tilnefningum, fer yfir þær og metur áður en verðlaunahafar eru boðaðir til fundar. Sem fyrr voru veitt verðlaun fyrir lóð við íbúðarhús, lóð við atvinnuhúsnæði, snyrtilegt bændabýli auk sérstakrar samfélagsviðurkenningar til einstaklings, hóps eða…Lesa meira

true

Óvarlega var staðið að sprengingum í Fossabrekku

Nú er unnið við efnistöku fyrir væntanlega vegagerð innarlega í Skorradal í Borgarfirði. Verktaki er Þróttur en undirverktaki við efnisvinnsluna er Borgarvirki. Efnið er m.a. sótt í klappir í Fossabrekku, sem er milli bæjanna Syðstu-Fossa í Andakíl og Hálsa í Skorradal. Eftir að myrkur skall á í gærkvöldi var unnið við sprengingar við veginn og…Lesa meira

true

Margir nemendur af Vesturlandi sendir heim úr Ungmennabúðum

Smit kom upp í hópi nemenda sem voru í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni í vikunni. Þar komu saman á mánudaginn margir nemendur í níunda bekk úr grunnskólum af Vesturlandi en í gærkvöldi fékkst staðfest Covid-19 smit í hópnum. Voru foreldrar og skólastjórnendur strax upplýstir um málið. Í kjölfarið var ákveðið, í samráði við Almannavarnir og…Lesa meira

true

Mikil aukning í löndunum í Grundarfirði

Töluverð aukning er milli ára á komum fiskiskipa til Grundarfjarðar en fjöldi landana árið 2020 var rétt rúmlega 260 en í október 2021 var fjöldi landana kominn í rúmlega 280. Stefnir sú tala vel yfir þrjú hundruð áður en árið er úti. Nú á síðustu vikum hafa m.a. Akurey AK-10, Helga María RE-1, Jón á…Lesa meira

true

Ask arkitektar sjá um hönnun á íþróttahúsi í Hvalfjarðarsveit

Búið er að semja við Ask arkitekta um hönnun á nýju íþróttahúsi í Hvalfjarðarsveit. Málið er enn á frumstigi og að sögn Lindu Bjarkar Pálsdóttur, sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit, á enn eftir að taka margar ákvarðanir áður en formlegar framkvæmdir geta hafist. „Þetta er enn á frumstigi og við eigum til dæmis eftir að taka ákvörðun…Lesa meira