Fréttir

true

Byrjað að steypa á Laugarbrautinni

Frá því í byrjun júní hafa staðið yfir framkvæmdir á Laugarbraut á Akranesi. Akraneskaupstaður var að endurnýja gangstéttir við götuna og samhliða því voru Veitur ohf að skipta um vatns- og raflagnir. Verktaki endurnýjunar gangstétta er Skóflan og verktaki lagnavinnu er Þróttur. Á mánudaginn voru steyptar gangstéttir mestan hluta öðrum megin á Laugarbrautinni alveg að…Lesa meira

true

Reglugerð um komandi loðnuvertíð

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu á komandi vertíð. Alls heimilar reglugerðin veiðar íslenskra skipa á allt að 662.064 tonnum sem gefur væntingar um að komandi vertíð verði sú stærsta í tæp 20 ár. Nýverið kynnti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf fyrir loðnuveiðar vertíðarinnar 2021-2022 upp…Lesa meira

true

Fyrirtækið Algó ehf. aflar sæmetis með sæslætti

Vill breyta mataræði Íslendinga til góðs Fyrirtækið Algó ehf. sótti nýlega um heimild til öflunar og sjálfbærrar nýtingar sjávarþörunga á strandsvæði innan netalaga í umdæmi Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð tók jákvætt í erindið og samþykkti að tilraunir til eins árs yrðu gerðar í nánu samráði við Akraneskaupstað. Tilgangur félagsins, Algó ehf, er að þróa starfsemi…Lesa meira

true

Skrifstofa Skessuhorns straum- og símasambandslaus eftir hádegi í dag

Veitur hyggjast í dag endurnýja rafmagnstengingar að húsinu Garðabraut 2A á Akranesi. Af þeim sökum verða skrifstofur Mannvits og Skessuhorns, auk íbúða á efri hæðum hússins, straumlausar frá klukkan 13-17 í dag, miðvikudaginn 13. október. Af þessum sökum verður ekki hægt að hringja í aðalnúmer skrifstofu Skessuhorns á þessum tíma. Hægt er að ná í…Lesa meira

true

Fjögur sveitarfélög á Snæfellsnesi í samstarf um umhverfis- og skipulagsmál

Fjögur sveitarfélög af fimm á Snæfellsnesi; Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit og Stykkishólmsbær, hafa nú tekið höndum saman um uppbyggingarverkefni innan stjórnsýslunnar með stofnun nýs sameiginlegs sviðs umhverfis- og skipulagsmála. Tveir starfsmenn hafa verið ráðnir. Kristín Þorleifsdóttir er nýr sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsmála og verður jafnframt skipulagsfulltrúi sveitarfélaganna fjögurra. Þá hefur Fannar Þór Þorfinnsson verið…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur sigruðu Stjörnuna

Snæfell tók á móti Stjörnunni í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í gærkvöldi. Heimastúlkur byrjuðu af miklum krafti og voru komnar í 9:1 eftir rúmlega þriggja mínútna leik. Stjörnustúlkur gáfust þó ekki upp við þetta áhlaup, náðu að halda í við Snæfell og munurinn aðeins þrjú stig eftir fyrsta leikhluta, 19:16.  Í öðrum…Lesa meira

true

Samþætt leiðakerfi í Borgarbyggð

Í næstu viku hefst formlega tilraunarverkefni í almenningssamgöngum í Borgarbyggð sem ber heitið „Samþætt leiðakerfi.“ Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hlutu 12 milljóna styrk, sem deilist á tvö ár, frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til að hrynda verkefninu í framkvæmd. Tilraunaverkefni þetta er samstarfsverkefni Borgarbyggðar, SSV, Menntaskóla Borgarfjarðar og Vegagerðarinnar. Til að gera verkefnið framkvæmanlegt þurfti Borgarbyggð…Lesa meira

true

Kosið verður um sameiningu tveggja sveitarfélaga á nýju ári

Hafnar eru sameiningarviðræður Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar, með það fyrir augum að íbúar kjósi um tillöguna í febrúar á næsta ári. Samstarfsnefnd sveitarfélaganna er skipuð fjórum fulltrúum, en með nefndinni starfa bæjarstjóri Snæfellsbæjar og bæjarritari. Vinnuheiti verkefnisins er „Snæfellingar“ og verður vefsíðan snaefellingar.is opnuð innan tíðar. Fulltrúar í samstarfsnefnd eru Júníana Björg Óttarsdóttir og…Lesa meira

true

Bikarúrslit á laugardaginn

Skagamenn leika úrslitaleik gegn Víkingi Reykjavík í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu næsta laugardag. Spilað verður á Laugardalsvelli og hefst leikurinn stundvíslega klukkan 15. Knattspyrnufélag ÍA og stuðningsmenn hvetja Skagamenn og aðra til að fjölmenna á völlinn, mæta gulir og glaðir og styðja sitt lið til sigurs. Nánar um ferðir á leikinn og upphitun má sjá…Lesa meira

Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er á morgun

Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er annar fimmtudagur í október ár hvert, nú 14. október. Tilgangur dagsins er að beina athygli almennings út um allan heim að blindu og sjónskerðingu, endurhæfingu blindra og sjónskertra og vörnum gegn sjónmissi. Alls eru um 1800 manns skráðir með blindu eða sjónskerðingu hér á landi í þjónustu hjá Sjónstöðinni og fer sá…Lesa meira