Fréttir

true

Þrjú hundruð manns mega koma saman í Þverárrétt

Fjallskilanefnd Þverárréttar í Þverárhlíð hefur fengið niðurstöðu um þær sóttvarnareglur sem gilda í réttinni næskomandi mánudag. Réttin er jafnan sú fjárflesta á landinu og margmenni eftir því. Þar af leiðandi er mikilvægt að hafa sóttvarnareglur á hreinu. Þuríður Guðmundsdóttir formaður nefndarinnar segir í tilkynningu á Facebook síðu sinni að reglurnar séu með þeim hætti að…Lesa meira

true

Kynningarfundir framundan um stofnun Nýsköpunarnets Vesturlands

Í næstu viku er fyrirhuguð fundaröð þar sem hugmyndir um stofnun vettvangs fyrir nýsköpun á Vesturlandi, Nýsköpunarnet Vesturlands (NÝVEST), verða kynntar. Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarna mánuði en markmiðið með stofnun vettvangsins er að tengja saman alla þá sem vilja vinna að nýsköpun á Vesturlandi, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Páll Snævar Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga…Lesa meira

true

Flokkur fólksins kynnir framboðslista fyrir Norðvesturkjördæmi

Eins og fram hefur komið skipar Eyjólfur Ármannsson fyrsta sæti á framboðslista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi. Eyjólfur er lögfræðingur og formaður Orkunnar okkar sem eru samtök þeirra sem vilja standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt Íslands í orkumálum. Eyjólfur hefur undanfarið meðal annars gætt hagsmuna landeigenda í Arnarfirði og Dýrafirði í þjóðlendumálum. Nú hefur flokkurinn birt nöfn…Lesa meira

true

Borgarverk í yfirlögnum á Snæfellsnesi

Starfsmenn Borgarverks mættu á Snæfellsnesið síðastliðinn sunnudag til að leggja seinna klæðingarlagið á Fróðárheiði, á þann hluta vegarins sem lokið var við að endurbyggja á síðasta ári. Vegarkaflinn er 4,7 kílómetrar en þegar þetta er skrifað var búið að leggja niður að Laxárgljúfri en ekki var hægt að gera mikið vegna rigningar á mánudaginn. Þetta…Lesa meira

true

Kynningarkvöld Björgunarfélags Akraness

Björgunarfélag Akraness heldur kynningu í kvöld, fimmtudaginn 9. september, þar sem nýliðaþjálfun og unglingadeild verða kynnt. Þar gefst þeim sem áhuga hafa kostur á að kynna sér starf félagsins. Kynningin fer fram í húsakynnum Björgunarfélags Akraness við Kalmansvelli. Klukkan 19 er kynning á nýliðaþjálfun félagsins. Allir sem eru fæddir 2005 og fyrr eru hjartanlega velkomnir.…Lesa meira

true

Ný heitavatnslögn í Melasveitinni

Nú er unnið að því að leggja nýja stofnlögn hitaveitu á fjóra bæi í Melasveit í Borgarfirði. Vatnið kemur ofan úr Reykholtsdal og tekið úr aðalstofnæð Veitna á móts við Fiskilæk. Nýja lögnin mun þjóna húsum og atvinnustarfsemi í Belgsholti, Melaleiti, Melum og Ási. Haraldur Magnússon bóndi í Belgsholti var að vinna við að hita…Lesa meira

true

Skallagrímur og Snæfell gáfu leikina í VÍS bikarnum

Vesturlandslið Skallagríms og Snæfells í meistaraflokki kvenna í körfubolta gáfu bæði leiki sína í 16-liða úrslitum VÍS bikarsins sem áttu að fara fram á mánudagskvöldið. Skallagrímur átti að spila gegn Val og Snæfell gegn Keflavík. Helsta ástæðan er sögð mannekla. Lára Magnúsdóttir, sem sæti á í stjórn Skallagríms, segir að aðalástæðan hafi einfaldlega verið sú…Lesa meira

true

„Ég elska að dekra við fólk, það er mín ástríða“

Í ágústmánuði opnaði Hendrik Björn Hermannsson veitingaþjónustuna H-veitingar í Borgarbyggð. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í eldhúsið til Hendriks í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í hádeginu á föstudaginn þar sem hann var á fullu að undirbúa hádegismat fyrir fólk á Hvanneyri, í Borgarnesi og nærsveitum. Þennan dag bauð hann upp á lasagna, snitsel í raspi, lambapottrétt, sveppasúpu og…Lesa meira

true

Leikskólinn Garðasel á Akranesi hélt upp á þrjátíu ára afmæli

Leikskólinn Garðasel á Akranesi hélt upp á þrjátíu ára afmæli sitt síðastliðinn miðvikudag. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn í leikskólann og settist niður með Ingunni Ríkharðsdóttur, leikskólastjóra, og spjallaði við hana um þær breytingar sem átt hafa sér stað í sögu skólans og hina stóru breytingu sem framundan er með flutningi í nýtt hús. Ingunn…Lesa meira

true

Skipað upp salti í vinnslurnar á Snæfellsnesi

Nú þegar vetrarvertíðin er að fara í gang þá vantar fiskvinnsluhúsunum salt eins og gefur að skilja. Norska skipið Wilson Paldiski kom til Ólafsvíkur í síðustu viku með salt í vinnsluhúsin. Að sögn Sigurðar Sveins Guðmundssonar hafnarvarðar í Ólafsvík var skipað upp 750 tonnum af salti sem fer á vinnslurnar á Snæfellsnesi. Verður saltið flutt…Lesa meira