Fréttir

true

ÍA féll í 2. deild eftir jafntefli við Hauka

ÍA lék gegn Haukum í síðustu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi en fyrir leik átti ÍA möguleika á að bjarga sér frá falli. Með sigri gegn Haukum og að annað hvort Grótta eða HK myndu misstíga sig hefði ÍA haldið sæti sínu í deildinni. Bæði Grótta og HK töpuðu sínum leikjum á heimavelli…Lesa meira

true

Vill að kynhneigð útiloki ekki lengur blóðgjöf

Heilbrigðisráðherra hefur sett drög að breytingu á reglugerð um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs og viðauka IV við sömu reglugerð til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Breytingin felur í sér að því er bætt inn í reglugerðina að það sé óheimilt að mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, svo sem kyns, kynhneigðar, uppruna eða stöðu…Lesa meira

true

Kvennahlaupið verður á morgun

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið á morgun, laugardaginn 11. september. Fyrsta kvennahlaupið var haldið árið 1990 með það markmið að fá fleiri konur út að hreyfa sig og hvetja þær til þáttöku í íþróttastarfi. Í dag er markmið hlaupsins m.a. að efla samstöðu kvenna og að eiga ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum. Einkennisorð hlaupsins…Lesa meira

true

Flokkur fólksins birtir uppfærðan framboðslista í Norðvesturkjördæmi

Flokkur fólksins sendi síðdegis í gær frá sér uppfærðan framboðslista í NV kjördæmi. Þá var búið að taka út nafn Ágústs Heiðars Ólafssonar sem skipaði annað sæti listans samkvæmt tilkynningu í gærmorgun. Í ljós hafði komið að Ágúst Heiðar var einnig á framboðslista Frjálslynda lýðræðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Það var héraðsfréttablaðið Austurglugginn sem vakti athygli á…Lesa meira

true

Sveitarfélög fengju allt að 586 milljónir kæmi til sameiningar

Nýtt yfirlit um mögulega fjárhagslega aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna sameininga sveitarfélaga hefur verið birt á vef sveitarstjórnarráðuneytisins. Þar má skoða framlög sem sveitarfélögum bjóðast nú, ef til sameiningar kæmi á árinu 2022. Í fyrra voru samþykktar nýjar reglur um fjárhagslega aðstoð Jöfnunarsjóðs til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga. Reglurnar heimila að sveitarfélög fái þrenns konar…Lesa meira

true

Styrkja menningarverkefni

Atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarverkefna í sveitarfélaginu árið 2021 en næsta úthlutun fer fram í október og þurfa umsóknir að berast í síðasta lagi viku fyrir fund nefndarinnar sem er 28. september nk. Markmið styrkveitinganna er að styðja við fjölbreytta menningarstarfsemi í sveitarfélaginu og stuðla að jákvæðri þróun…Lesa meira

true

Hljómsveitin Gaddavír gefur út nýtt myndband

Skaga-harðkjarnasveitin Gaddavír gaf í dag út nýtt myndband við lagið Jóhann Stadium. Lagið er af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar sem kemur út á fyrri hluta næsta árs. Myndbandinu er leikstýrt af Bergi Líndal Guðnasyni og tekið upp af Leif Erni Kaldal Eiríkssyni. Hljómsveitin Gaddavír samanstendur af fimm vinum af Skaganum sem hafa spilað saman síðan árið…Lesa meira

true

Nýnemar í Kvennaskólanum í skógræktinni á Akranesi

Nemendur af félagsvísindabraut og náttúruvísindabraut Kvennaskólans í Reykjavík hafa þessa vikuna verið í hópefli í skógræktinni Garðalundi á Akranesi. Á mánudag og þriðjudag voru það nemendur 2. bekkjar og á miðvikudag og fimmtudagar komu nýnemar og stunduðu hópefli undir dyggri stjórn þeirra Önnu Margrétar Tómasdóttur og Jorgen Nilsson frá Skátafélagi Akraness. Blaðamaður Skessuhorns leit við…Lesa meira

true

Sótt um einkaleyfi á að nota heitið Íslenskt viský

Matvælastofnun hefur borist umsókn frá Eimverki ehf. þar sem sótt er um vernd fyrir afurðaheitið „Íslenskt viskí/viský- Icelandic Whisky/whiskey“. Um er að ræða umsókn um vernd afurðarheitis samkvæmt lögum um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu. Í þessu tilviki er sótt um vernd sem vísar til uppruna sbr. 4. gr. laga…Lesa meira

true

Blaðamannafélagið minnir á nauðsyn sjálfstæðra fjölmiðla

Blaðamannafélag Íslands hefur sent áskorun til stjórnmálaflokkana um að gera það að stefnumáli sínu að tryggja að á Íslandi fái þrifist frjálsir, sjálfstæðir og óháðir fjölmiðlar. Í tilkynningu segir að fjölmiðlar séu grundvöllur lýðræðislegrar umræðu og lýðræðislegra samfélaga, um það er ekki deilt. „Það er einnig óumdeilt að rekstrarumhverfi fjölmiðla hefur versnað mikið á undanförnum…Lesa meira