Fréttir

true

Mikilvægur sigur hjá Skagakonum

Kvennalið ÍA sem hefur átt frekar rýrt keppnistímabil í sumar og voru stelpurnar því komnar í fallsæti í Lengjudeildinni fyrir leikinn gegn Grindavík sem fór fram á föstudagskvöld á Akranesvelli. Þurftu þær því nauðsynlega á sigri að halda í leiknum til þess að rífa sig upp töfluna. Það var nákvæmlega það sem þær gerðu og…Lesa meira

true

Fimm mörk frá Jóhanni Árna afgreiddu Víkinga

Það er ekki á hverjum degi sem einn og sami leikmaðurinn skorar fimm mörk í leik. En það gerðist þegar að Fjölnir sigraði Víking Ólafsvík 7:0 í leik sem spilaður var á Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið, en þá skoraði hinn tvítugi Jóhann Árni Gunnarsson fimm mörk. Það var fátt sem benti til þess að leikurinn mundi…Lesa meira

true

Breyttar reglur um sóttkví í skólum

Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Með breytingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp. Í leiðbeiningum (sjá hér að neðan) vegna breyttra reglna eru skilgreind viðmið um sóttkví eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hafi verið mikil eða…Lesa meira

true

Dalamenn brölta

Í apríl síðastliðnum varð til skemmtilegur hópur á facebook, með heitinu Dalamannabrölt – áhugamannahópur. Ingibjörg Jóhannsdóttir stóð fyrir stofnun hópsins, en hann telur nú tæplega hundrað manns. Tilgangurinn er að „brölta“, þ.e. að fara í gönguferðir um Dalina sér til skemmtunar og heilsubótar. „Ég nefndi það við nokkra hvort við ættum ekki að stofna hóp…Lesa meira

true

Kviknaði í bíl við árekstur

Í hádeginu í dag varð harður árekstur tveggja bíla á mótum Stillholts og Vesturgötu á Akranesi. Ökumaður bíls virti ekki stöðvunarskyldu og ók í veg fyrir bíl sem ekið var um Vesturgötu. Annar bíllinn valt við áreksturinn og eldur kom upp í hinum. Slys urðu ekki teljandi en ökumenn beggja bíla voru þó fluttir til…Lesa meira

true

Kirkjugarði Ólafsvíkur afhent minningargjöf

Þriðjudaginn 10. ágúst síðastliðinn færðu afkomendur hjónanna Maríu Sveinsdóttur og Aðalsteins Guðbrandssonar kirkjugarði Ólafsvíkur bekk að gjöf til minningar um þau, en María hefði átt aldarafmæli þann dag. María og Aðalsteinn bjuggu lengst af sinni búskapartíð í Ólafsvík en bjuggu síðustu æviárin í Kópavogi. María lést 18. september 2007 og Aðalsteinn 3. febrúar 2011. Það…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn töpuðu gegn Uppsveitum

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við 3-1 tap gegn Uppsveitum þegar liðin mættust á miðvikudaginn í 4. deild karla í knattspyrnu. Leikið var í uppsveitum Árnessýslu. Fyrsta markið skoraði Viktor Már Jónasson fyrir Borgnesinga á 29. mínútu en heimamenn í Uppsveitum náðu að lagfæra stöðu sína áður er flautað var til hálfleiks. Óliver Jóhannsson skilaði…Lesa meira

true

Grundaskóli fer úr sjö starfsstöðvum yfir í tvær fyrir komandi skólaár

Í mars á þessu ári var haldinn kynningarfundur í streymi um skýrslu Verkís um nýja úttekt á húsnæði Grundaskóla á Akranesi. Skýrslan var unnin vegna grunsemda um ónóg loftgæði í skólanum. Helstu niðurstöður úttektarinnar voru að rakaskemmdir fundust víða í húsnæði skólans og sumstaðar höfðu þær leitt til myglu. Út frá því var aðgerðaráætlun hent…Lesa meira

true

Sveitarfélagið biður aðila Húsafellsmáls afsökunar

Á fundi í byggðarráði Borgarbyggðar í gær var lagður fram samningur milli Borgarbyggðar, Páls Guðmundssonar og Sæmundar Ásgeirssonar, vegna Húsafellsmálsins sem undirritað var 12. ágúst síðastliðinn. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns snerist samningurinn um ræða þríhliða samkomulag um lúkningu mála varðandi skipulags- og byggingarmál er varða Húsafell 1 og Bæjargil og legsteinahús…Lesa meira

true

Leik ÍA og KR á sunnudaginn hefur verið frestað

Leik ÍA og KR, sem átti að fara fram næstkomandi sunnudag á Akranesvelli í Pepsi max deild karla í knattspyrnu, hefur verið frestað vegna Covid-19 smits í liði Vesturbæinga. 26 leikmenn KR hafa verið sendir í sóttkví allavega fram á mánudag en þá fer hópurinn í skimun. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær leikurinn…Lesa meira