Fréttir

true

Borgarbyggð bar að afhenda gögn sem snertu fjárhag

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur með úrskurði sínum 7. júlí síðastliðinn komist að þeirri niðurstöðu að sveitarfélaginu Borgarbyggð hafi borið að veita íbúum aðgang að fjárhagslegum upplýsingum sem beðið var um en hafnað að veita í krafti trúnaðarupplýsinga. Það var Guðsteinn Einarsson íbúi í Borgarbyggð sem leitaði til nefndarinnar í framhaldi af því að hann hafði…Lesa meira

true

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi í blíðskaparveðri síðastliðinn laugardag. Að sögn Önnu Melsteð, eins af aðstandendum hátíðarinnar, mætti fjöldi fólks á hátíðina og heppnaðist hún mjög vel. Um morgunin fór fram sögugangan Í fótspor fjallkonu um Stykkishólm þar sem göngufólkið var í þjóðbúningum. Börnum var boðið að koma og máta sig í þjóðbúninga og…Lesa meira

true

Vantar starfsmenn á verkstæðin í Borgarnesi

Síðastliðinn miðvikudag hætti Bifreiðaþjónusta Harðar starfsemi í Borgarnesi. Þar með lauk 57 ára samfelldum rekstri fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur alla tíð sinnt smurþjónustu og hjólbarðaviðgerðum, nú síðast við Borgarbraut 55. Þegar leið að lokum síðasta starfsdags á verkstæðinu var boðið upp á köku, eins konar erfidrykkju starfseminnar, að sögn Davíðs Sigurðssonar annars af eigendum fyrirtækisins. Eins…Lesa meira

true

Fjöldi íbúa á Vesturlandi nálgast sautján þúsund

Íbúar á Vesturlandi voru 16.826 talsins 1. júlí síðastliðinn og hafði fjölgað um 121, eða um 0,7%, frá 1. desember 2020. Í samantekt Þjóðskrár kemur fram að á þessu tímabili hefur íbúum fjölgað í sjö sveitarfélögum af tíu á Vesturlandi, en fækkað í þremur. Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, eða um tíu…Lesa meira

true

Hvaðan kemur Regnbogafáninn?

Árið 1978 hannaði og saumaði San Francisco-búinn Gilbert Baker fána með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra. Á þrjátíu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þríhyrningurinn sem um langt skeið var helsta auðkenni réttindabaráttunnar. Fyrir þetta framtak sitt hefur Gilbert Baker stundum verið kallaður Betsy Ross samkynhneigðra en hún…Lesa meira

true

Reglugerð um stafræn samevrópsk Covid-19 vottorð

Ný reglugerð um stafræn Covid-19 vottorð tók gildi hér á landi 1. júlí síðastliðinn en vottorðin munu gilda í öllum ríkjum Evrópusambandsins auk Íslands, Noregs, Liecthenstein og Sviss. Markmiðið með vottorðinu er að auka frjálsa för fólks milli ríkja og auka öryggi einstaklinga meðan á Covid-19 faraldrinum stendur. Reglugerðin setur ramma um útgáfu, sannprófun og…Lesa meira

true

Lög og ljóð um eða eftir íslenskar konur

Sunnudaginn 11. júlí klukkan 16 munu Auður Gunnarsdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja lög og ljóð um eða eftir íslenskar konur. Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaröð í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Auður Gunnarsdóttir sópran hefur lokið söng- og kennslunámi bæði hér heima og erlendis ásamt ýmsum meistaranámskeiðum. Árin 1999-2005 var hún fastráðin…Lesa meira

true

Nemendum fjölgar við Landbúnaðarháskóla Íslands

Góð aðsókn er í Landbúnaðarháskóla Íslands næsta haust en alls sóttu yfir 200 væntanlegir nemendur um nám á háskólabrautum eða í búfræði. Ekki verður tekið inn í garðyrkjunám við skólann í ár. Flestar umsóknir bárust í BSc nám í búvísindum og næstflestar í landslagsarkitektúr. Allar námsbrautir Landbúnaðarháskóla Íslands heyra undir þrjár fagdeildir sem eru Ræktun…Lesa meira

true

Alþjóðlegt þríþrautarmót á Snæfellsnesi um næstu helgi

Alþjóðlega þríþrautarmótið Iceland Extreme Triathlon verður haldið á Snæfellsnesi um helgina. Frá þessu er greint á vefsíðu Snæfellsbæjar en mótið var haldið á Snæfellsnesi árið 2019 en féll niður í fyrra sökum heimsfaraldurs. Keppni hefst aðfararnótt laugardags á tæplega fjögurra km löngu sundi við rætur Kirkjufells. Að því loknu verður hjólað 205 km leið um…Lesa meira

true

Skagahrós, ný síða á fésbókinni

Skagakonan Valdís Marselía Þórðardóttir stofnaði í vikunni nýja síðu á fésbókinni sem nefnist Skagahrós. Þessi síða á að vera vettvangur fyrir Skagamenn til að koma á framfæri hrósum, meðmælum og jákvæðum fréttum frá Akranesi. Þá segir einnig á síðunni að; „Hér inni eru öll almenn leiðindi bönnuð og fýlupúkar bannaðir. Á þessari síðu er jákvæðnin…Lesa meira