Fréttir

true

Skallagrími varð hált á svellinu gegn Skautafélaginu

Skallagrímur lék gegn Skautafélagi Reykjavíkur í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á Skallagrímsvelli í gærkvöldi. Hrólfur Sveinsson kom Skautafélaginu yfir á 36. mínútu þegar hann skaut að marki og boltinn skrúfaðist í markið. Hrafn Ingi Jóhannsson bætti við öðru marki rétt fyrir leikhlé þegar hann skautaði framhjá varnarmanni Skallagríms og staðan 2-0 í hálfleik…Lesa meira

true

Nýtt samræmt námsmat í þróun

Nemendur í 4., 7. og 9. bekk í grunnskólum geta tekið ný hæfnimiðuð samræmd könnunarpróf næsta vor. Hefðbundin samræmd könnunarpróf verða því ekki lögð fyrir í haust. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu kemur fram að fyrirlögn þessara prófa verður fyrsta skrefið í átt að nýju fyrirkomulagi samræmds námsmats fyrir nemendur í grunnskólum. Meginmarkmið þess er að…Lesa meira

true

650 ökumenn myndaðir við of hraðan akstur

Lögreglan á Vesturlandi hefur úrvinnslu ljósmynda úr hraðamyndavélum um allt land á höndum. Á fyrstu sex dögum júlímánaðar hafa 650 ökumenn verið myndaðir við hraðakstur af hraðamyndavélum sem eru staðsettar víðs vegar um landið og á höfuðborgarsvæðinu. Ökumennirnir eiga von á sektum vegna hraðakstursins. Þá hefur lögregla kært 65 ökumenn fyrir of hraðan akstur, hraði…Lesa meira

true

Mótmæla frestun framkvæmda á Dynjandisheiði

Í tilefni af fréttum um vegalagningu um Dynjandisheiði, frestun eða flýtingu framkvæmda þar, vill stjórn Vestfjarðastofu og sveitarstjórnir Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkur, Súðavíkurhrepps, Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar koma eftirfarandi á framfæri: „Hin mikla framkvæmd Dýrafjarðargöng mun ekki nýtast til fulls fyrr en vegur um Dynjandisheiði er fullgerður frá Mjólká í Vatnsfjörð ásamt Bíldudalsvegi. Um er að ræða nýjan…Lesa meira

true

Keppt í mótorkrossi í Ólafsvík síðar í mánuðinum

Keppni á vegum Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands til Íslandsmóts í mótorkrossi verður haldið á braut Motorcrossklúbbs Snæfellsbæjar sem staðsett er fyrir utan Enni við Ólafsvík laugardaginn 24. júlí. Keppnin hefst um kl. 10:30 og stendur til kl. 16:00. Skessuhorn heyrði hljóðið í Janusi Jónssyni, formanni klúbbsins. Janus býr reyndar í Reykjavík og starfar sem flugfjarskiptamaður…Lesa meira

true

Byrjað að malbika á Faxabraut

Malbikunarframkvæmdir eru hafnar við Faxabraut og búið er að malbika þó nokkurn kafla frá litríku sementstönkunum og vel áleiðis að enda sjóvarnargarðsins sem var og hét. Því styttist í að hægt verði að taka rúnt á Ástarbrautinni eins og þessi vegarkafli er kallaður af Skagamönnum í daglegu tali. Vegagerðin, Akraneskaupstaður og Veitur eru aðalframkvæmdaaðilar að…Lesa meira

true

Veðrið lék við landsmenn um helgina

Óhætt er að segja að einmunablíða hafi einkennt Vesturland um liðna helgi. Tjaldstæði fylltust, bæjarhátíðir voru haldnar og fjölmargir aðrir viðburðir stórir og smáir. Framundan er svo þétt viðburðadagskrá. Meðal annars Fjórðungsmót Vesturlands og Hinsegin Vesturland, en báðar þessar hátíðir verða í Borgarnesi um helgina. Á meðfylgjandi mynd er Tryggvi Konráðsson sem sýndi fyrrum sveitungum…Lesa meira

true

Fékk Covid á Tenerife

Guðbjörg Halldórsdóttir frá Borgarnesi varð fyrir því í aprílbyrjun á þessu ári að smitast af Covid-19. Hún var þá stödd á vinsælu Tenerife eyjunni í Atlantshafi með vinkonum sínum í fríi. „Við áttum flug heim 7. apríl og ég greindist með veiruna 5. apríl,“ segir Guðbjörg í samtali við Skessuhorn. Guðbjörg segir frá upplifun sinni…Lesa meira

true

54% verðmunur á flugnafælum í Borgarnesi

Eftir að hlýna tók í veðri hefur flugnalíf kviknað af krafti. Lúsmý og mýflugur eru nú víða að angra fólk. Við því er hægt að bregðast að einhverju leyti. Til dæmis eru margir sem kaupa sér rafrænar flugnafælur og setja í húsin hjá sér, ekki síst í svefnherbergin því lúsmýið er hvað sprækast þegar heiðarlegt…Lesa meira

true

Reynir Hellissandi vann Mídas

Reynismenn léku gegn liði Mídasar í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á Víkingsvelli í gærkvöldi. Mídas komst fljótlega yfir í leiknum með skallamarki Guðmundar Jóhanns Arngrímssonar eftir hornspyrnu en Kristinn Magnús Pétursson jafnaði fyrir Reyni á 39. mínútu með marki úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Atla Má Gunnarssyni innan vítateigs og…Lesa meira