Fréttir

true

Jónsmessuhátíð á Dönskum dögum hefst í dag

Bæjarhátíðin Jónsmessuhátíð á Dönskum dögum í Stykkishólmi hefst í dag, miðvikudaginn 23. júní, og verður fram á laugardag. Hátíðin er ein elsta bæjarhátíð landsins en hún var haldin árlega í ágústmánuði frá árinu 1994-2019. Árið 2019 var tekin ákvörðun um að halda hátíðina annað hvert ár á móti Norðurljósahátíðinni og jafnframt að færa hátíðina fram…Lesa meira

true

Ný prófunarstofa – Löggilding ehf. – tekur til starfa á Akranesi

Fyrirtækið Löggilding ehf. á Akranesi fékk starfsleyfi frá Neytendastofu í vikunni. Fyrirtækið rekur prófunarstofu og er viðurkenndur aðili til löggildingar og prófana og sérhæft í löggildingu á mælivogum. Fyrirtækið hefur starfsstöð sína á Smiðjuvöllum 17 á Akranesi en mun sinna fjölbreyttum verkefnum um land allt. Blaðamaður Skessuhorns ræddi við eigendur fyrirtækisins, þá Ásgeir Kristinsson og…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar voru haldnir hátíðlegir um liðna helgi

Skemmtilegir viðburðir voru í boði um alla sveit um liðna helgi þegar Hvalfjarðardagar fóru fram. Í félagsheimilinu Miðgarði opnaði Áskell Þórisson sýninguna „Ljósmyndir og litaflóð“ á föstudeginum. Á laugardeginum kom fólk saman í dögurði á Hótel Glym áður en fjölskyldudagskrá hófst um alla sveit. Feðginin Bjarni Þór og Sara Björk opnuðu myndlistarsýninguna „Blús í hús“…Lesa meira

true

Fjögurra ára á lista yfir einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla

Fjögurra ára gamalt barn á Norðvesturlandi fékk nýlega sent bréf frá Creditinfo. Bréfið innihélt tilkynningu um fyrirhugaða skráningu á lista yfir einstaklinga í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla. Gefnir eru 14 dagar frá dagsetningu bréfsins til að hafa samband við fyrirtækið og gera athugasemdir. Bréfið sjálft lítur mjög undarlega út, óháð innihaldi þess. Stafabil eru í…Lesa meira

true

Borgfirðingabók 2021 er komin út

Sögufélag Borgarfjarðar hefur nú gefið út Borgfirðingabók 2021. Bókin hefur verið send til áskrifenda, sem eru um 400 talsins. „Bókin er að venju 288 blaðsíður og miðast þykkt hennar við að hún komist inn um bréfalúgur kaupenda. Bókin er einnig seld í lausasölu hjá ritnefnd eða í gegn um fésbókarsíðu Sögufélags Borgarfjarðar,“ segir Ingibjörg Daníelsdóttir…Lesa meira

true

Keppt verður í Álmanninum í næstu viku

Keppt verður í Álmanninum á Akranesi miðvikudaginn 30. júní. Álmaðurinn er óhefðbundin þríþrautarkeppni þar sem er hjólað , hlaupið og synt. Keppt verður í karla-, kvenna- og liðaflokki óháð kyni. Keppnin hefst við Jaðarsbakka kl. 18:00 þar sem hjólað verður af stað upp að Akrafjalli. Þegar þangað er komið hlaupa keppendur frá rótum Akrafjalls upp…Lesa meira

true

Svavar Knútur á tónleikaferð um Vesturland

Svavar Knútur söngvaskáld fagnar nýju sumri með tónleikaferðalagi um landið. Á tónleikunum mun Svavar Knútur segja sögur, leika lög úr öllum áttum, bæði frumsamin og sígild, gömul og ný. Svavar Knútur vinnur nú að nýrri plötu og mun að sjálfsögðu leika lög af henni ásamt eldra efni. Um liðna helgi söng hann á Bjarteyjarsandi en…Lesa meira

true

Úrskurður um stöðuleyfi í Fjárborg

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tók fyrir á fundi sínum 25. maí síðastliðinn kæru sem snerist um álagningu stöðuleyfisgjalda vegna tveggja gáma við gripahús á lóðinni Fjárborg 10d í Snæfellsbæ. Eigandi lóðarinnar kærði álagninguna að upphæð 146.000 krónur. Í málavöxtum segir að eigandi lóðarinnar hafi sótt um stöðuleyfi fyrir gámana 2. júní 2020 og var umsókn…Lesa meira

true

Lions gaf hesteigendafélaginu reiðhjálma

Hestaeigendafélagið Hringur í Ólafsvík fékk góða gjöf á dögunum þegar félaginu voru færðir barnareiðhjálmar. Munu hjálmarnir nýtast félaginu vel en þeir voru teknir í notkun þegar félagið var með opið hús á 17. júní. Það var Lionsklúbbur Ólafsvíkur sem færði félaginu þessa góðu gjöf og vilja félagsmenn fá að nýta tækifærið og koma á framfæri…Lesa meira

true

Ítrekað ekið á umferðareyju í Ólafsvík

Umferðaróhapp varð nýverið í Ólafsvík þegar ekið var á umferðareyju sem staðsett er á miðri Ennisbraut. Töluverðar skemmdir urðu á bílnum og var hann óökuhæfur og þurfti að fjarlægja með kranabíl. Rétt er að taka það fram að þetta er ekki í fyrsta skipti sem ekið er á umferðareyju á þessum stað.Lesa meira