Fréttir

true

Helgrindur opnaðar í Grundarfirði

Nýtt hótel er við það að taka til starfa miðsvæðis í Grundarfirði þar sem bæjarskrifstofurnar voru áður til húsa. Hótelið ber nafnið Helgrindur eftir fjallgarðinum fyrir ofan bæinn. Herbergin á nýja hótelinu eru öll hin glæsilegustu með frábæru útsýni. Þórður Áskell Magnússon er í forsvari fyrir hótelið en búist er við að opna fyrir bókanir…Lesa meira

true

Sýningin Borgarfjarðarblómi verður opnuð á laugardaginn

Sýningin Borgarfjarðarblómi, eftir Viktor Pétur Hannesson, verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar á morgun, 26. júní. Þar mun Viktor sýna verk sem hann hefur unnið með jurtum úr Borgarfirði. Viktor kemur af Austfjörðum en hefur lengst af búið í Reykjavík en býr í dag á Stokkseyri. Hann útskrifaðist af myndlistarbraut frá Listaháskóla Íslands árið…Lesa meira

true

Brákarhátíð með breyttu sniði í ár

Ákveðið hefur verið að halda Brákarhátíð, bæjarhátíðina í Borgarnesi, með öðruvísi sniði í ár. Hollvinasamtök Borgarness hafa séð um skipulagningu hátíðarinnar síðustu ár og ákváðu samtökin að í ár yrðu minni viðburðir skipulagðir yfir sumartímann undir yfirskriftinni Viðburðardagatal Brákarhátíðar 2021. Er þetta gert í stað einnar stórrar hátíðar. Helsta ástæða þessarar breytingar er vegna Covid-19…Lesa meira

true

Golfmótið Víkingur Valkyrja í Grundarfirði

Golfklúbburinn Vestarr í Grundarfirði hélt golfmótið Víkingur Valkyrja síðasta föstudagskvöld. Fyrirkomulag mótsins var útsláttarkeppni þar sem allir keppendur léku á sama teig, karlar af gulum og konur af rauðum. Lægsta skorið var talið þar sem einn féll út á hverri holu og að lokum var einn sigurvegari í hvorum flokki. Í karlaflokki sigraði Steinar Þór…Lesa meira

true

Hraðapróf til sýnatöku tekið í notkun á heilsugæslustöðvum

Heilsugæslan hefur tekið í notkun hraðapróf til greiningar á kórónuveirunni sem veldur Covid-19. Hraðaprófin eru ekki notuð við einkennasýnatöku, heldur eru þau eingöngu ætluð þeim sem þurfa á þeim að halda, t.d. vegna ferðalaga, þar sem krafist er neikvæðrar niðurstöðu úr sýnatöku á landamærum og niðurstaða úr hraðprófi er tekin gild. Gjald fyrir sýnatöku með…Lesa meira

true

Kvennalið ÍA fékk skell á heimavelli

Meistaraflokkur kvennaflokks ÍA í knattspyrnu fékk Víking R. í heimsókn á Akranesvöll í gærkvöldi þegar liðin áttust við í sjöundu umferð Lengjudeildar kvenna. Gestirnir úr Reykjavík reyndust sterkari aðilinn og unnu Skagakonur nokkuð sannfærandi, 5-1. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill. Eina markið kom á 11. mínútu frá Víkingi R. þegar Kristín Erna Sigurlásdóttir skilaði boltanum…Lesa meira

true

Bikarkeppnin heldur áfram – þrjú Vesturlandslið í eldlínunni

Nokkrir leikir í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu fara fram í dag og á morgun. Um er að ræða 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins en þrjú lið eru nú þegar búin að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Tvö Vesturlandslið verða í eldlínunni í kvöld. Víkingur Ólafsvík mætir KFS á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum kl. 18:00 og ÍA…Lesa meira

true

IceDocs heimildamyndahátíðin hefst á Akranesi í dag

Heimildamyndahátíðin IceDocs hefst í dag á Akranesi. Sýndar verða 23 fjölbreyttar heimildamyndir auk annarra viðburða. Hátíðin að þessu sinni er kynnt með vönduðum bæklingi sem dreift var í hús á Akranesi í síðustu viku. Þetta er í 23. skipti sem hátíðin fer fram en hún hefur vaxið að gæðum og umfangi með hverju árinu. Að…Lesa meira

true

Þjóðhátíðardeginum fagnað

Þjóðhátíðardeginum var fagnað víða um land síðastliðinn fimmtudag. Sveitarfélögin á Vesturlandi buðu upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni dagsins, eins og sjá má í myndafrásögn í Skessuhorni sem kom út í dag. Meðfylgjandi mynd var tekin í Búðardal þar sem skátarnir leiddu skrúðgöngu frá Silfurtúni að Dalabúð. Fleiri myndir á opnu í Skessuhorni sem kom…Lesa meira

true

Þrjár samstarfskonur frá Borgarnesi segja frá námsferli sínum

Þrjár samstarfskonur úr leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi luku um daginn átta ára námi þegar þær útskrifuðust frá Háskólanum á Akureyri með meistararéttindi sem leikskólakennarar. Fyrst voru það þrjú ár upp í stúdentinn og svo fimm ár í háskóla. Allt eru þetta konur á miðjum aldri, allar með heimili og börn og fjölskyldu að sinna ásamt…Lesa meira