Fréttir

true

Ísbúð Huppu verður opnuð í Borgarnesi

Ísbúð Huppu verður opnuð í Borgarnesi í júlí. Þetta er sjöunda Huppu ísbúðin á landinu en fyrsta búðin var opnuð á Selfossi árið 2013. Ísbúðin verður staðsett inn af Food Station við Digranesgötu 4. „Margrét kaupfélagsstjóri hafði samband við okkur með þessa skemmtilegu pælingu, að við myndum opna þarna ísbúð. Okkur þótti þetta frábær hugmynd.…Lesa meira

true

Kári gerði ekki góða ferð norður

Kári á Akranesi lék gegn liði Völsungs frá Húsavík á laugardag í 2. deild karla í knattspyrnu. Völsungur komst yfir á áttundu mínútu þegar Santiago Abalo kom heimamönnum yfir og hann bætti svo við öðru marki á 22. mínútu. Sæþór Olgeirsson skoraði svo þriðja mark Völsungs tíu mínútum fyrir hálfleik og útlitið heldur dökkt hjá…Lesa meira

true

Erfiðar aðstæður á hálendinu

Í gær sinnti hópur á hálendisvakt björgunarsveita Landsbjargar um 12 klukkustunda útkalli við leit að göngufólki sem hafði ekki skilað sér í skála. „Þrátt fyrir að dagatalið sýni að langt sé liðið á júnímánuð endurspegla aðstæður á hálendinu það ekki en snjór er víða mjög mikill. Hann gerði nokkrum göngumönnum á leið um Laugaveginn erfitt…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík enn án sigurs

Víkingur Ólafsvík mætti liði Vestra frá Ísafirði í lokaleik sjöundu umferðar Lengjudeildar karla á laugardaginn í Ólafsvík. Eftir sex mínútna leik skoraði Vladimir Tufegdzic fyrir Vestramenn eftir vandræðagang í teig heimamanna og síðan bætti Nacho Gil við öðru marki á 36. mínútu og staðan 0-2 í hálfleik. Fyrrnefndur Vladimir gerði sitt annað mark og þriðja…Lesa meira

true

Tíu ára samningur undirritaður um Grímsá

Tímamótasamningur var nýverið gerður um leigu Grímsár í Borgarfirði milli veiðifélagsins Hreggnasa og Veiðifélags Grímsár og Tunguár, í ljósi þess að gildistími nýs samnings er tíu ár. Grímsá og Tunguá eru án efa meðal fengsælustu laxveiðiáa landsins. Samstarf þessara aðila á sér langa sögu en það nær til ársins 2004 þegar Hreggnasi tók við sölu…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu gegn Fylki

Skagamenn léku í gær gegn liði Fylkis í Árbænum og töpuðu fjórða leiknum í röð í Pepsi Max deild karla. Skagamenn byrjuðu þó vel í leiknum því strax á fjórðu mínútu skoraði Gísli Laxdal Unnarsson eftir að hafa fylgt eftir stangarskoti Hákons Inga Jónssonar. Um miðjan fyrri hálfleik jafnaði Helgi Valur Daníelsson metin fyrir Fylkismenn…Lesa meira

true

Varað er við hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi og á Grjóteyrarhæð

Spáð er sunnan hvassviðri í dag um landið vestanvert samhliða rigningu. Á norðanverðu Snæfellsnesi má reikna með hviðum allt að 30-35 m/s frá því klukkan 11 og þar til síðdegis. Eins norðan Skarðsheiðar frá hringvegi við Seleyri og að Skeljabrekku. Við þessar aðstæður er óráðlegt að vera á ferðinni á húsbílum eða með eftirvagna sem…Lesa meira

true

Allt að fimm tonnum af sementi var dælt yfir byggðina

Verkfræðistofan EFLA hefur skilað af sér minnisblaði með niðurstöðum mælinga á sementlosun sem varð fyrir mistök við Sementsverksmiðjuna á Akranesi 5. janúar síðastliðinn. Við dælingu úr sementsflutningaskipi slapp töluvert magn sement út í loftið og lagðist yfir nærliggjandi götur, hús og bíla. Í framhaldinu hófst umfangsmikið hreinsunarstarf. Í minnisblaði EFLU birtast mælingar úr fallrykssöfnurum sem…Lesa meira

true

Fasteignagjöld hæst á Seltjarnarnesi og í Borgarnesi

Byggðastofnun hefur líkt og undanfarin ár fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat á sömu viðmiðunarfasteigninni um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 fermeter að grunnfleti, 476 rúmmetrar og stendur á 808 fm lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2021 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út…Lesa meira

true

Helgrindur opnaðar í Grundarfirði

Nýtt hótel er við það að taka til starfa miðsvæðis í Grundarfirði þar sem bæjarskrifstofurnar voru áður til húsa. Hótelið ber nafnið Helgrindur eftir fjallgarðinum fyrir ofan bæinn. Herbergin á nýja hótelinu eru öll hin glæsilegustu með frábæru útsýni. Þórður Áskell Magnússon er í forsvari fyrir hótelið en búist er við að opna fyrir bókanir…Lesa meira