Fréttir

true

Háskólahátíð og brautskráning 130 nemenda á Bifröst

Háskólahátíð var haldin á Bifröst laugardaginn 19. júní en þá brautskráðust 130 nemendur frá Háskólanum á Bifröst. Jón Snorri Snorrason forseti viðskiptadeildar, Njörður Sigurjónsson forseti félagsvísinda- og lagadeildar og Guðjón Ragnar Jónasson forstöðumaður háskólagáttar afhentu nemendum skírteini sín við hátíðlega athöfn í Hriflu, hátíðarsal skólans. Í lok athafnar ávarpaði Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor hina brautskráðu…Lesa meira

true

Norðurálsmótinu í knattspyrnu lýkur í dag

Norðurálsmótið í 7. og 8. flokki í knattspyrnu fór fram á Akranesi um helgina. Þetta var í 36. skipti sem mótið er haldið. Mótið hófst 17. júní með keppni í 8. flokki, sem er fyrir 6 ára og yngri. Alls tóku 69 drengjalið þátt og 16 stúlknalið. Eins og fyrr tóku margir þar sín fyrstu…Lesa meira

true

Haraldur segir næsta skref í höndum flokksforystunnar

Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi lauk í gær og lágu úrslit fyrir í nótt. Sitjandi þingmenn kjördæmisins gáfu báðir kost á sér til forystu. Í fyrsta sæti í prófkjörinu varð Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra. Hlaut hún 1.347 atkvæði í 1. sætið. Annað sæti listans kom í hlut Haraldur Benediktsson alþingismanns og bónda…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskipið eftir rúmlega árs hlé

Skemmtiferðaskipið Le Dumont D’urville kom til Grundarfjarðar 17. júní síðastliðinn en þetta var fyrsta skemmtiferðaskipið í rúmlega ár, en allar komur skemmtiferðaskipa lögðust af á meðan heimsfaraldurinn stóð sem hæst. Skipið kom upp úr hádegi og sigldi svo út fjörðinn snemma kvölds. Farþegar af skipinu fóru flestir í land og voru einhverjir sem fóru hringinn…Lesa meira

true

Stálheppinn sá sem keypti lottómiða í Borgarnesi

Það var heppinn miðaeigandi sem var einn með allar tölur réttar í laugardagslottóinu í gær og fær fyrir rúmar 9,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Olís við Brúartorg í Borgarnesi. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 420 þúsund krónur í sinn hlut, en sá miði var í áskrift.Lesa meira

true

Þórdís Kolbrún leiðir í Norðvesturkjördæmi

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sigraði prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi með 1.347 atkvæði í fyrsta sæti. Alls voru greidd 2.289 atkvæði. Skiptust atkvæðin svona: Í fyrsta sæti er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir með 1.347 atkvæði í 1.sæti. Í öðru sæti er Haraldur Benediktsson með 1.061 atkvæði í 1.-2. sæti. Í þriðja sæti er Teitur Björn Einarsson…Lesa meira

true

Nýjustu tölur úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu tölur úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi voru birtar núna rétt eftir klukkan ellefu þegar talin hafa verið 998 atkvæði úr flestum, en ekki öllum, kjördeildum. Atkvæðin skiptast svona: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir leiðir með 644 atkvæði í fyrsta sæti. Í öðru sæti er Haraldur Benediktsson með 440 atkvæði í 1.-2. sæti. Í þriðja sæti…Lesa meira

true

Fyrstu tölur úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi lauk nú í kvöld en Haraldur Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sækjast bæði eftir því að leiða lista flokksins í komandi kosningum. Haraldur er oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi en Þórdís Kolbrún er varaformaður flokksins auk þess sem hún er sitjandi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Fyrstu tölur voru birtar nú rétt…Lesa meira

true

Flúormengun vestan við Grundartanga

Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð var haldinn miðvikudaginn 9. júní. Þar var ályktað að byggðin vestan við Grundartanga sé undir of miklu álagi flúors. Því til rökstuðning var bent á yfirlit um flúormengun í beinum lamba frá 2010-2019. „Umhverfisvöktun opinberra aðila er afar takmörkuð og ekki gerð á réttum stöðum, þ.e. stöðum sem gefa glögga og…Lesa meira

true

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði hefjast á sunnudaginn, 20. júní. Er þetta þriðja starfsár sumartónleikanna en grunnhugmynd þeirra er að viðhalda staðnum sem menningarstað. „Alls verða níu tónleikar í sumar hvern sunnudag kl. 16 frá 20. júní til 15. ágúst. Allur ágóði rennur til styrktar staðnum sem með tímanum mun vonandi verða aðdráttarafl…Lesa meira