Fréttir

true

Mikið um að vera á sjómannadaginn á Akranesi

Áhrif Covid faraldursins fara nú blessunarlega dvínandi og sjást þess merki víða. Grímuskylda heyrir að mestu leyti sögunni til og fólk kemur nú saman í stærri hópum en um langt skeið. Þá er ánægjulegt að sjá að nokkuð viðamikil dagskrá verður á sjómannadaginn á Akranesi. Sjómannadagsmessa verður í Akraneskirkju, minningarathöfn við minnismerkið í kirkjugarðinum og…Lesa meira

true

Ólst upp á bryggjunni og sótti svo ungur sjóinn

Styrmir Páll Sigurðsson er einn af þeim ungu mönnum sem alla tíð hefur hafa haft áhuga á að gera sjómennsku að ævistarfi en eins og hann segir sjálfur; ,,ég var alltaf á bryggjunni sem barn eins og mörg börn sem alin eru upp við sjávarsíðuna.“ Styrmir er fæddur 1989 og segir að uppeldisárin haf tengst…Lesa meira

true

Vorhátíð í Auðarskóla í gær

Í Auðarskóla í Búðardal er hefð fyrir því að halda vorhátíð fyrir skólaslit og margt skemmtilegt var í boði þegar hátíðin fór fram í gær. Slökkviliðið bauð upp á froðurennibraut, foreldrafélagið var m.a. með hoppikastala og grillaðar pylsur og nemendur tróðu upp með dans- og söngatriðum. Að venju var vítaspyrnukeppni milli starfsfólks og útskriftarnema en…Lesa meira

true

Brjálað að gera á grásleppunni

„Það hefur verið brjálað að gera,“ segir Baldur Þórir Gíslason grásleppusjómaður úr Dölum í samtali við Skessuhorn. Baldur er fæddur og uppalinn í Búðardal en þegar hann var 22 ára byrjaði hann á grásleppu, vorið 2003. „Pabba langaði að kaupa bát og hafði dreymt um það lengi svo ég asnaðist til að segja við hann…Lesa meira

true

Meirihluti búinn að fá allavega eina sprautu

Meirihluti Vestlendinga hefur nú fengið allavega fyrri bólusetningu gegn Covid-19 samkvæmt upplýsingum á Covid.is. Nú eru 28% Vestlendinga fullbólusettir og 30,72% hafa fengið fyrri bólusetningu. 41,27% eru enn óbólusettir. Allir landshlutar utan Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins hafa náð að bólusetja meira en helming. Á Suðurnesjum eru 50,12% enn óbólusettir og á höfuðborgarsvæðinu eru 51,35% óbólusettir.Lesa meira

true

Frambjóðendur í prófkjöri á ferð og flugi

Níu gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem fer fram dagana 16. og 19. júní næstkomandi. Töluverðrar spennu gætir í aðdraganda prófkjörs í ljósi þess að núverandi þingmenn sækjast báðir eftir oddvitasæti listans; þau Haraldur Benediktsson og Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir. Frambjóðendur eru nú á ferð og flugi um kjördæmið og halda…Lesa meira

true

Sjómannadagshelgin hafin í Grundarfirði

Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur sunnudaginn 6. júní og því er mikið um að vera víða um land. Í Grundarfirði hófust herlegheitin í gær með skotmóti á milli sjómanna og landmanna. Í dag er svo árlegt golfmót í boði G.Run, Bjartmar Guðlaugsson verður með tónleika og frú Eliza Reid afhjúpar listaverk Sólrúnar Halldórsdóttur svo eitthvað sé…Lesa meira

true

Guðni fékk myndarlegan hæng í Norðurá

Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði í morgun. Guðna Ágústssyni fyrrverandi þingmanni og ráðherra var boðið að egna flugu fyrir þann silfraða. Ekki leið löng stund þar til hann var búinn að setja í fisk og skömmu síðar var 14 punda hængur kominn á land. Þetta var jafnframt fyrsti laxinn sem Guðni veiðir á flugu.…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um hálft prósent á hálfu ári

Þann 1. júní síðastliðinn voru íbúar á Vesturlandi 16.792 og hafði fjölgað um 87, eða um 0,5%, frá 1. desember síðastliðnum. Á þessu sex mánaða tímabili hefur íbúum á Akranesi fjölgað um 97, í Snæfellsbæ um 20, í Hvalfjarðarsveit um 6, í Helgafellssveit um 5 og í Skorradalshreppi um einn. Íbúum í Grundarfirði fækkaði hins…Lesa meira

true

Breið og Lazy Town fengu styrki úr Lóu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, greindi síðasta mánudag frá 29 verkefnum sem fengu úthlutun úr verkefninu Lóu sem styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingu á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi. Hlutverk styrkjanna er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni…Lesa meira