Fréttir

true

Guðni mun kasta fyrir fyrstu laxana

Ávallt ríkir nokkur eftirvænting eftir hverjum er boðið að kasta fyrir fyrstu laxana þegar Norðurá í Borgarfirði er opnuð fyrir veiði. Í hugum margra markar sú opnun formlegt upphaf laxveiðitímabilsins hverju sinni. Ýmsum þjóðþekktum einstaklingum hefur hlotnast þessi heiður í gegnum tíðina. Nægir að nefna söngvarann Helga Björns í fyrra. Samkvæmt traustum heimildum Skessuhorns er…Lesa meira

true

Vordagar í grunnskólunum

Grunnskólarnir á Akranesi halda svokallaða Vordaga um þessar mundir. Má sjá grunnskólakrakka um allan bæ í alls kyns verkefnum og leikjum. Þeir Sigurður, Ísleifur, Benedikt og Guðjón, nemendur í sjöunda bekk í Grundaskóla, komu við hjá Skessuhorni í morgun. Þeir voru í ratleik en hluti af leiknum var að finna stærsta og besta landsbyggðarblaðið sem…Lesa meira

true

Tónlistarveisla framundan hjá Kalman listafélagi

Listafélagið Kalman efnir til tónlistarveislu í upphafi júnímánaðar. Fram undan eru þrennir áhugaverðir tónleikar. Laugardaginn 5. júní kl. 20 stíga á svið þeir Örn Árnason leikari og söngvari, Óskar Pétursson söngvari og Jónas Þórir píanóleikari. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Sjómannssonurinn, bóndadurgurinn og strákurinn af mölinni.“ Þeir félagar flytja skemmtivísur, syngja að hætti Álftagerðisbræðra og svo bregða…Lesa meira

true

Stórefnileg með veiðistöngina

Við fórum í Fiskilækjarvatn fyrir skömmu og dóttirin landaði þremur fiskum,“ sagði Reynir M Sigmundsson er við spurðum frétta af silungsveiði á svæðinu. Eftir að hlýna tók í veðri hefur veiðin lagast mikið víða í vötnum landsins og fiskurinn farið að gefa sig meira. ,,Helga Dís er fimm ára og landaði hún þremur fiskum; tveimur…Lesa meira

true

Stýrimaður og smábátasjómaður á Akranesi

Kristófer Jónsson er sjómaður á Akranesi. Hann er annar stýrimaður á einu af skipum Brims, Akurey, og frítímann notar hann til grásleppu- og strandveiða. Kona hans er Anna Ósk Sigurgeirsdóttir og saman eiga þau þrjár dætur, Dagnýju Líf 16 ára, Rakel Söru á 12 ári og Aldísi Ýr sem er á 10 ári. Blaðamaður hitti…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Stokkseyri

Skallagrímsmenn gerðu góða ferð á Stokkseyri í gærkvöldi þegar þeir léku við heimamenn og unnu nauman en sterkan sigur, 3-2. Sigurjón Ari Guðmundsson kom Skallagrími yfir eftir 18 mínútna leik og þar við sat í hálfleik. Stokkseyringar jöfnuðu í byrjun síðari hálfleiks en sú sæla stóð ekki lengi yfir því (Super) Mario Miguel Pascual skoraði…Lesa meira

true

Snæfell dregur lið sitt úr Dóminosdeildinni

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Snæfells í Stykkishólmi hefur ákveðið að draga lið sitt úr keppni fyrir komandi tímabil í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Dominosdeildinni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem körfuknattleiksdeild Snæfells sendi frá sér í gær. Ákveðið hefur verið að skrá liðið í fyrstu deild fyrir komandi leiktíð. „Ástæðan er [erfiður] rekstur sem og að máttarstólpar…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Líf og fjör á Langasandi í dag

Von er á nemendum a.m.k. þriggja skóla á Langasand á Akranesi í dag, en vordagar standa nú sem hæst í skólunum. Þá er jafnan leitast við að gera eitthvað skemmtilegt og njóta náttúrunnar. Snemma í morgun voru nemendur 1.-6. bekkjar Brekkubæjarskóla á Akranesi mættir á sandinn. Hafist var handa við sandkastalakeppni og skipt upp í…Lesa meira