Fréttir

true

Írskir dagar hefjast á Akranesi á morgun

Bæjarhátíðin Írskir dagar hefst á morgun á Akranesi og mun standa fram á sunnudagskvöld. Er þetta jafnframt 20 ára afmæli hátíðarinnar og eins og venja er fyrir verður þétt dagskrá alla hátíðina og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að sögn Fríðu Kristínar Magnúsdóttur, viðburðarstjóra Akraneskaupstaðar, hefur undirbúningur fyrir hátíðina gengið mjög…Lesa meira

true

Jarðgöng og lágbrú taldir fýsilegir kostir fyrir Sundabraut

Starfshópur á vegum ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem fjallaði um Sundabraut hefur lokið störfum og skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sundabraut hefur verið til skoðunar um árabil og í skýrslunni eru nokkrir valkostir vegnir og metnir. Í niðurstöðum hópsins eru tveir valkostir taldir koma til greina; jarðgöng yfir í Gufunes og lágbrú…Lesa meira

true

Langtímaveikindi kosta bæjarsjóð 36 milljónir á hálfu ári

Á fundi bæjarráðs Akranesaupstaðar í lok júní voru samþykktar fjárveitingar til að mæta langtímaveikindum starfsfólk bæjarins. Samþykkt var að úthluta 18,2 milljónum króna úr veikindapotti Akraneskaupstaðar vegna tímabilsins janúar til og með júní 2019. „Um er að ræða helming af heildarfjárhæð umsókna, en ákvörðun um endalega úthlutun vegna tímabilsins verður tekin í lok árs þegar…Lesa meira

true

Eydís Líndal skipuð í embætti forstjóra Landmælinga Íslands

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Landmælinga Íslands til næstu fimm ára. Eydís hefur starfað hjá LMÍ frá árinu 1999, síðast sem forstöðumaður yfir fagsviði miðlunar og grunngerðar og sem settur forstjóri frá september 2018 eftir að Magnús Guðmundsson fór í ársleyfi. Eydís var staðgengill forstjóra frá…Lesa meira

true

Skagamenn gerður jafntefli á útivelli

ÍA gerði markalaust jafntefli við Víking R. í heldur bragðdaufum leik í 11. umferð Pepsi Max deild karla í gær. Leikurinn fór fram á Víkingsvelli í Reykjavík. Skagamenn byrjuðu leikinn mun beittari en náðu þó aldrei að skapa sér alvöru færi á upphafsmínútunum. Eftir kröftuga byrjun gestanna fóru heimamenn hægt og bítandi að taka völdin…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð um komandi helgi

Næstkomandi laugardag, 6. júlí, verður árleg hátíð Hvanneyringa og gesta þeirra haldin. Að þessu sinni verður sérstaklega fagnað 70 ára afmæli Ferguson dráttarvéla á Íslandi og að 130 ár eru liðin frá því landbúnaðarfræðsla hófst á Hvanneyri og hefur verið samfelld síðan. Fergusonfélagið og Jötunn vélar ætla að setja upp sýningu þar sem gestir geta…Lesa meira

true

Töfrandi tónlist frá Írlandi

Valgerður Jónsdóttir, tónlistarkona á Akranesi, syngur heillandi þjóð- og popplög frá Írlandi og segir sögur tengdar lögunum á tónleikum í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið á Akranesi, fímmtudagskvöldið 4. júlí. Þennan dag hefst bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi og stendur yfir fram á sunnudag. Dagskrá tónleikanna er tvískipt. Fyrir hlé syngur Valgerður úrval af írskum þjóðlögum, en…Lesa meira

true

Tap hjá Kára

Káramenn átti lítið erindi í Leikni F. á laugardag þegar liðið heimsótti þá síðarnefndu fyrir austan. Leiknir F. sigraði bragðdaufa Káramenn 5-1 í níundu umferð í annarri deild karla í knattspyrnu.  Það var Daniel Garcia Blanco sem skoraði fyrstu tvö mörkin fyrir heimamenn. Fyrsta kom á 29. mínútu og seinna markið kom þremur mínútum síðan.…Lesa meira

true

Bjarki komst ekki áfram á Evrópumóti áhugamanna

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson komst ekki áfram á Evrópumóti áhugamanna sem fram fór í vikunni. Um gríðarlega erfitt mót er að ræða þar sem leikið var á Diamond Country vellinum í Austurríki. Bestu áhugakylfingar veraldar tóku þátt en alls voru 144 keppendur, sem eru í sætum 288 eða ofar á heimslista áhugakylfinga, skráðir til leiks. Bjarki…Lesa meira

true

Borgfirðingabók 2019 komin í hendur áskrifenda

Sögufélag Borgarfjarðar gefur nú út 20. árgang Borgfirðingabókar. Starfsemi Sögufélagsins á sér þó mun lengri sögu. Það var stofnað 7. desember 1963 og er því komið vel á sextugsaldurinn. Fyrstu útgáfuverk félagsins voru íbúatöl og Borgfirzkar æviskrár. Hlutverkin voru þó fleiri eins og segir í 2. grein samþykkta þess þar er einnig tekið fram að…Lesa meira