Fréttir

true

Landsmót fimmtíu ára og jafnvel tvöfalt það

Landsmóti UMFÍ 50+ lauk í Neskaupstað í gær. Í lokagreininni var keppt í stígvélakasti sem felur í sér að þátttakendur kasta stígvéli eins langt og þeir geta. Keppnisgreinar fóru fram á íþróttavellinum í Neskaupstað í úrvali af íslensku veðri; í gegnum súldarúða og smávegis roki en þess á milli brast á með glampandi sól og…Lesa meira

true

Vesturland er vetraráfangastaður Evrópu annað árið í röð

Ferðatímaritið Luxury Travel Guide hefur tilkynnt að Vesturland hafi annað árið í röð verið valið vetraráfangastaður Evrópu, eða; ,,Winter Destination of Europe 2019.“ Landshlutinn er hlaðinn verðlaunum en nefna má að árið 2017 hlaut það titilinn myndrænasti áfangastaður Evrópu. Þetta er því þriðja árið í röð sem Vesturland hlýtur verðlaun hjá tímaritinu. Luxury Travel Guide…Lesa meira

true

Sementstpokinn – stolt Sementsverksmiðjunnar

Sýningin „Sementstpokinn – stolt Sementsverksmiðjunnar“ var opnuð í Bókasafni Akraness síðastliðinn föstudag. Prýðisgóð mæting var á opnunina eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þar hélt Garðar H. Guðjónsson blaðamaður erindi um sögu „Pokans“, blaðsins sem Starfsmannafélag Sementsverksmiðjunnar gaf út í rúm 40 ár. Sjálf sýningin samanstendur af ellefu skiltum þar sem rakin er útgáfusaga…Lesa meira

true

Jafntefli í bragðdaufum leik

Víkingur Ó. gerði jafntefli gegn botnliði Magna á Grenivíkurvelli um helgina í níundu umferð fyrstu deildar karla í fótbolta. Vindurinn í Grenivík gerði leikmönnum erfitt fyrir að ná upp almennilegu spili stóran hluta af leiknum en boltinn skiptist nokkuð jafnt á milli liðanna án þess þá að þau sköpuðu sér einhver almennileg marktækifæri. Markalaust var…Lesa meira

true

Sem minnstar tafir verði á breikkun Vesturlandsvegar

Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum í liðinni viku bókun í tengslum við fyrirhugað umhverfismat á Vesturlandsvegi um Kjalarnes, en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum telur Skipulagsstofnun að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Slíkt mun fela í sér verulegar tafir á framkvæmdum, líklega að minnsta kosti um eitt…Lesa meira

true

Loksins dreifir Egill Skallagrímsson silfri sínu yfir þingheim

Guðni Ágústsson fer árlega í Þingvallagöngu og segir í henni frá fornum köppum sögualdar. Fimmtudagskvöldið 4. júlí næstkomandi verður hann ásamt fríðu föruneyti á Þingvöllum og fjallar að þessu sinni um Egil Skallagrímsson. „Búist er við að loksins dreifi Egill silfri sínu yfir þingheim,“ segir Guðni. Gangan hefst við Hakið klukkan 20 og gengið þaðan…Lesa meira

true

Laxinn var fljótur að ganga í Norðurá eftir að tók að rigna

Eftir afar dræma byrjun í laxveiðinni í Norðurá í Borgarfirði er betri tíðar að vænta fyrir veiðimenn. Eftir að rigna tók í héraðinu síðari hluta júní sáust kröftugar göngur laxa á neðsta svæði árinnar vaða uppeftir. Þrátt fyrir að ekki hafi mikið verið búið að rigna þá var ótrúlegt hvað laxinn var fljótur að sækja…Lesa meira

true

ÍA stúlkur úr leik í bikarkeppninni

ÍA er dottið úr Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir að hafa tapað gegn Fylki í 8-liða úrslitum á Akranesvelli á föstudagskvöldið. Bæði lið mættu ákveðin til leiks og var jafnræði með þeim í byrjun, en það átti eftir að breytast. Á 17. mínútu var dæmt víti á Skagastúlkur. Ída Marín Hermannsdóttir fór á punktinn og…Lesa meira

true

Varmalandsmeyjar fyrstar til að nýta Hótel Varmaland

Í lok síðustu viku kom vaskur hópur Varmalandsmeyja saman á nýju Hótel Varmalandi í Stafholtstungum. Þetta var hópur 29 kvenna sem útskrifuðust frá Húsmæðraskólanum á Varmalandi vorið 1959 en með þeim í för voru 17 makar. Hópurinn gisti í tvær nætur og fór auk þess skoðunarferð um Borgarfjörð. Glatt var á hjalla hjá hópnum eins…Lesa meira