Fréttir

true

Veiran er síst vægari en í fyrri bylgjum hennar

Upplýsingafundir Almannavarna vegna Covid-19 hafa nú verið færðir til klukkan 11 árdegis á mánudögum og fimmtudögum í stað kl. 14. Þar eru í dag Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Þau fara á fundinum yfir stöðu mála varðandi framgang veirufaraldursins. 59 smit greindust síðastliðinn sólarhring og þar af 34 hjá fólki…Lesa meira

true

Mörðu sigur í kaflaskiptum leik

Skallagrímskonur lögðu KR, 71-75, þegar liðin mættust í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Reykjavík á laugardaginn. KR-konur byrjuðu leikinn af krafti og höfðu undirtökin allan upphafsfjórðunginn. Þær leiddu enda að honum loknum með fjórum stigum, 20-14. En snemma í öðrum leikhluta snerist taflið við. Skallagrímskonur náðu góðum kafla og tóku forystuna. Mest…Lesa meira

true

Borgnesingar byrjuðu með látum

Skallagrímur lék fyrsta leik vetrarins í 1. deild karla í körfuknattleik þegar liðið mætti Fjölni á útivelli síðastliðið föstudagskvöld. Borgnesingar byrjuðu móti með látum, því þeir fóru með 19 stiga sigur af hólmi, 91-110. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Fjölnismenn höfðu undirtökin í fyrsta leikhluta og leiddu með tveimur stigum að honum loknum,…Lesa meira

true

Naumt tap gegn Njarðvík

Kármenn töpuðu naumlega gegn Njarðvíkingum, 2-3, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Akraneshöllinni. Gestirnir af Suðurnesjum fengu óskabyrjun því þeir komust yfir strax á 5. mínútu eftir mistök í vörn Kára. Hilmar Halldórsson skallaði fyrirgjöf upp í loftið og hugðist síðan skalla boltann til baka á Dino…Lesa meira

true

Tap gegn toppliðinu

Skagakonur máttu játa sig sigraðar gegn toppliði Tindastóls, 2-4, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni á föstudagskvöld. Gestirnir komust yfir strax á 3. mínútu leiksins þegar Jaclyn Poucel Árnason varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Hún setti fótinn í fyrirgjöf frá hægri en var óheppin því boltinn…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar öruggir

Sæti Víkings Ó. í 1. deild karla í knattspyrnu er tryggt, þrátt fyrir 1-3 tap gegn Leikni R. þegar liðin mættust í Ólafsvík á laugardag. Úrslit annarra leikja voru Ólafsvíkingum hagfelld og liðin fyrir neðan geta ekki náð þeim þrátt fyrir að tveir leikir séu eftir í mótinu. Leikurinn gegn Leikni fór nokkuð fjörlega af…Lesa meira

true

Fengu skell á heimavelli

Skagamenn lágu gegn FH þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var á Akranesvelli og skoruðu FH-ingar fjögur mörk gegn engu. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en eftir því sem líða tók á fyrri hálfleikinn sóttu FH-ingar í sig veðrið. Þeir komust yfir á 34. mínútu þegar…Lesa meira

true

Átta mánaða fangelsi og ævilöng svipting

Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt vegna fíkniefnaaksturs. Dómur þess efnis var upp kveðinn í Héraðsdómi Vesturlands 25. september síðastliðinn. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa í apríl 2019 ekið bifreið um Borgarnes undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk þess að hafa verið sviptur ökuréttindum, uns lögregla stöðvaði…Lesa meira

true

Óbreytt landamæraskimun til 1. desember

Ríkisstjórnin hefur ákveðið óbreytt fyrirkomulag skimana vegna Covid-19 á landamærum til 1. desember nk, nema að tilefni gefist til endurskoðunar fyrr. Byggist sú ákvörðun á stöðu faraldursins hér innanlands og erlendis og öðrum viðmiðum sem sóttvarnalæknir hefur sett fram, s.s. stöðu skimana fyrir sjúkdómnum í samfélaginu, alvarleika sjúkdómsins, getu heilbrigðiskerfisins, annarra sóttvarnaráðstafana og svo framvegis.…Lesa meira

true

Betri samgöngur ohf. stofnað

Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu; Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa stofnað opinbert hlutafélag sem ætlað er að sinna uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur félagsins, sem ber heitið Betri samgöngur ohf., er að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem fól í sér sameiginlega framtíðarsýn og fjárfestingar í…Lesa meira