Fréttir

true

Í fangelsi fyrir eignaspjöll

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands 28. september síðastliðinn dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir eignaspjöll. Manninum var annars vegar gefið að sök að hafa skemmt dyraumbúnað þegar hann braut upp dyr íbúðar í Borgarbyggð í febrúar og hins vegar að hafa í maí valdið skemmdum á lakki bifreiðar með því að setja annan fótinn í…Lesa meira

true

Fjarkennsla tekin að nýju upp í framhaldsskólunum

Skólameistarar allra framhaldsskólanna á Vesturlandi hafa nú tilkynnt nemendum að vegna fjölgunar smita af kórónuveiru þurfa skólarnir nú að sæta fjöldatakmörkunum sem gera staðkennslu erfitt fyrir. Skólameistarar funduðu í dag með menntamálaráðherra. Nemendum verður því kennt ýmist í gegnum fjarkennslukerfi Teams eða INNU dagana 5.-14. október. Í tilkynningu til nemenda FVA á Akranesi kemur fram…Lesa meira

true

Banaslys í umferðinni í nótt

Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var í hafnaði utan vegar við Heydalsveg á Snæfellsnesi í nótt. Lögreglan á Vesturlandi tilkynnir um slysið á facebook síðu sinni og segir það hafa orðið á öðrum tímanum í nótt. Tvennt var í bílnum sem hafnaði ofan í á. Tókst vegfarendum sem komu að slysstað…Lesa meira

true

Hvetur stjórnvöld til að efla gjaldeyrisskapandi iðnað

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness hvetur stjórnmálamenn til að efla gjaldeyrisskapandi iðnað. Bendir hann á að það sé farsælasta og fljótvirkasta leiðin til að þjóðin vinni sig hratt og örugglega út úr fjárþrengingum vegna Covid-19 faraldursins. „Við einfaldlega vinnum okkur út úr tekjufallinu með því að efla og styðja við frekari gjaldeyrisskapandi atvinnugreinar,“ skrifar hann…Lesa meira

true

Innan við fjórðungur nýrra smita hjá fólki í sóttkví

Síðastliðinn sólarhring greindust 47 ný innanlandssmit af Covid-19 hér á landi. Einungis ellefu af þeim voru í sóttkví, sem er með því minna frá því faraldurinn tók að breiða úr sér. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það mikið áhyggjuefni hversu útbreidd veiran er í samfélaginu í ljósi þess hversu fáir sem nú eru að greinast höfðu…Lesa meira

true

Hertar reglur taka gildi á morgun til að sporna gegn útbreiðslu smita

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um hertari samfélagslegar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu Covid-19. Ný reglugerð þess efnis tekur gildi á morgun, mánudaginn 5. október. Stærstu einstöku breytingarnar verða 20 manna fjöldatakmörkun með ákveðnum undantekningum en þar má nefna 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum. Krám, skemmtistöðum,…Lesa meira

true

Sumarlestri lokið í Snæfellsbæ

Grunnskóli Snæfellsbæjar, í samstarfi við Bókasafn Snæfellsbæjar, stóð fyrir sumarlestri í fjórða sinn nú í sumar. Markmiðið með sumarlestri er að hvetja börn til lesturs og að njóta góðra bóka ásamt því að viðhalda færni sína í lestri milli skólaára. Að þessu sinni var sumarlesturinn í formi lestrarpóstkorts fyrir 1. til 4. bekk og 5.…Lesa meira

true

Katrín boðar umræður um auðlindaákvæði í stjórnarskrá

Í stefnuræðu sinni við upphaf Alþingis síðastliðinn fimmtudag færði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í tal breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Sagði hún að Alþingi fengi í vetur tækifæri til að takast á við ákvæði í stjórnarskrá um að auðlindir, sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, verði þjóðareign. Sagði hún að um þetta hafi verið deilt allt frá því…Lesa meira

true

Sóttvarnalæknir íhugar hertari aðgerðir

Tvö ný kórónuveirusmit hafa greinst á Vesturlandi undanfarna tvo daga, bæði í Grundarfirði. Í dag eru 26 í landshlutanum í einangrun með Covid-19, skv. tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu, en voru 24 á miðvikudaginn. Engar tölur voru birtar í gær. Í dag eru 13 í einangrun í Stykkishólmi, níu á Akranesi,…Lesa meira

true

Aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku og þrífösunar

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár og fjármálaáætlun 2021-2025, koma fram áform ríkisstjórnarinnar um aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku, flýtingu á jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku og úrbóta á varaafli. „Þessi þrjú verkefni styðja öll við þá stefnu okkar að tryggja öllum landsmönnum jafnan aðgang að raforku. Síðasti vetur gerði öllum ljóst að…Lesa meira