
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 11. ágúst síðastliðinn 1,2 milljónar króna styrk til sóknarnefndar Saurbæjarsóknar vegna endurbóta á Hallgrímskirkju í Saurbæ. Sveitarstjórn hafði áður samþykkt styrkveitinguna, með því skilyrði að heildarfjármögnun væri tryggð. Það hefur nú verið gert og sveitarstjórn staðfesti því fyrri ákvörðun sína.Lesa meira








