Fréttir

true

Sumarfundur ríkisstjórnarinnar fer nú fram á Hellu

Ríkisstjórn Íslands hefur á undanförnum árum haldið einn sumarfund á landsbyggðinni ár hvert. Í dag fer slíkur fundur fram á Hellu á Rangárvöllum. Hófst hann núna klukkan 10. Að fundi loknum mun ríkisstjórnin funda með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurlandi og ræða í framhaldinu við fjölmiðla. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar ríkisstjórnin hélt árlegan landsbyggðarfund í…Lesa meira

true

Síðasti strandveiðidagurinn á morgun

Morgundagurinn, miðvikudagurinn 19. ágúst, verður síðasti strandveiðidagurinn á þessu tímabili. Frá og með fimmtudeginum 20. ágúst verða stranvdeiðar bannaðar, tæpum tveimur vikum áður en veiðitímabilið er á enda. Frá þessu er greint á vef Fiskistofu. Strandveiðitímabilið er frá 1. maí og út ágústmánuð, en útgefnar aflaheimildir duga ekki til að ljúka yfirstandandi vertíð. Við upphaf…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Skallagrímsmönnum

Skallagrímsmenn skildu jafnir í gærkvöldi í leik gegn Hafnarfjarðarlinu KÁ þegar liðin mættust í sínum fyrsta leik í C-riðli fjórðu deildar karla í knattspyrnu eftir hlé á Íslandsmótinu vegna kórónuveirunnar. Þegar var búið að fresta tveimur umferðum og verða dagsetningar fyrir þær viðureignir ákveðnar síðar. Var því farið beint í 11. umferð mótsins þar sem…Lesa meira

true

Kvöldlokun Vesturlandsvegar verður áfram næstu þrjú kvöld

Vegna malbikunarvinnu var Vesturlandsvegur lokaður milli Geldingaár og Lyngholts í Hvalfjarðarsveit í gærkvöldi milli klukkan 20:00 og 07:00 að morgni. Verður vegurinn einnig lokaður á sama kafla í kvöld og næstu tvö kvöld þar á eftir, vegna framkvæmdanna. Á meðan á vinnu stendur er sett upp hjáleið um Hvalfjarðarveg og Borgarfjarðarbraut. Þannig þarf fólk sem…Lesa meira

true

Sóttu veikan sjómann í Norðurfjörð

Björgunarsveitin í Árneshreppi á Ströndum og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út um klukkan 14 í gær vegna veiks sjómanns norður af Norðurfirði. Sjómaðurinn, sem var einn um borð í trillu á strandveiðum, náði sjálfur að kalla eftir aðstoð. Björgunarsveitarfólk fór ásamt öðrum heimamönnum á móti sjómanninum, hlúðu að honum og fylgdu honum til hafnar. Þyrla…Lesa meira

true

Aldrei hærra hlutfall fyrstu kaupa

Tæpur þriðjungur þeirra sem keyptu fasteign á fyrri helmingi ársins voru að kaupa sína fyrstu eign. Hefur hlutfall fyrstu kaupenda aldrei verið hærra, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar benda enn fremur til þess að um fjórðungur þeirra sem enn búa enn í foreldrahúsum séu í fasteignahugleiðingum.…Lesa meira

true

Saga guðanna eftir Þórhall Heimisson

Bókin Saga guðanna er komin út hjá bókaútgáfunni Sæmundi. Hér er á ferð fróðleg og yfirgripsmikil bók þar sem lesandanum er boðið í ferðalag um heim trúarbragðanna. Fjallað er á aðgengilegan hátt um það sem helstu trúarbrögð mannkyns hafa sjálf fram að færa, saga þeirra rakin í stórum dráttum og helstu einkennum þeirra lýst. „Með…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur lokaður næstu fjögur kvöld

Vegna malbikunarframkvæmda verður Vesturlandsvegur lokaður milli Geldingaár og Lyngholts  í Hvalfjarðarsveit næstu fjögur kvöld, 17. ágúst – 20. ágúst, frá kl. 20:00 til 07:00 hverju sinni. Á meðan malbikunarvinnu stendur verður vegurinn lokaður og umferð beint um hjáleið um Hvalfjarðarveg og Borgarfjarðarbraut.Lesa meira

true

Slasaðist á fæti á leiðinni að Glymi

Um klukkan 18:30 í gærkveldi fengu björgunarsveitir á Vesturlandi boð um að koma slasaðri konu til aðstoðar á gönguleiðinni að fossinum Glymi í Hvalfirði. Björgunarsveitarmenn komust á fjórhjóli til konunnar og gátu ekið með hana niður að bílastæði í veg fyrir sjúkrabíl. Hún var ekki alvarlega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu. Verkefninu var lokið tæpum…Lesa meira

true

Þrettán marka tap Snæfellinga

Snæfellingar áttu sér ekki viðreisnar von gegn KFR, þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Stykkishólmi, þar sem gestirnir skoruðu hvert markið á fætur öðru en Snæfell komst ekki á blað. Gestirnir skoruðu sjö mörk í fyrri hálfleik og héldu áfram í þeim síðari, þar sem þeir skoruðu…Lesa meira