Fréttir

true

Góður sigur á Húsavík

Káramenn unnu góðan útisigur á Völsungi, 2-3, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var norður á Húsavík. Heimamenn fengu óskabyrjun, þegar Elvar Baldvinsson kom Völsungi yfir strax á 2. mínútu leiksins. En Káramenn voru betri í fyrri hálfleik. Þeir jöfnuðu metin á 20. mínútu með marki frá Páli Sindra…Lesa meira

true

Þurftu að lúta í gras á heimavelli

Víkingur Ó. beið lægri hlut gegn Þrótti R. á heimavelli, 1-2, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardagskvöld. Var þetta fyrsti sigur Þróttar í deildinni í sumar. Ólafsvíkingar fengu prýðilegt færi strax í upphafi leiksins. Ívar Reynir Antonsson fékk þá boltann á fjærstöng eftir fyrirgjöf, átti gott skot að marki sem…Lesa meira

true

Vítaspyrna í uppbótartíma réði úrslitum

Skagamenn unnu dramatískan sigur á Fylki, 3-2, þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var á Akranesi. Snemma leiks settu Skagamenn boltann í stöngina en þess utan voru gestirnir hættulegri fram á við í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir á 39. mínútu þegar Arnór Gauti Ragnarsson skoraði eftir fyrirgjöf…Lesa meira

true

Drengir voru 160 fleiri á Vesturlandi við upphaf skólaárs í fyrra

Í ljósi þess að nú eru grunnskólar að hefja starfsemi eftir sumarleyfi er áhugavert að rýna í tölu Hagstofa Íslands um fjölda barna og starfsmanna í grunnskólum landsins. Þar kemur m.a. fram að haustið 2019 voru 8.600 starfsmenn í grunnskólum hér á landi í 7.644 stöðugildum. Þar af störfuðu 5.458 við kennslu. Kennurum án kennsluréttinda…Lesa meira

true

Mikið af marglyttum í fjörunni

Þegar gengið er í fjörunni vestan við Grundarfjörð má sjá mikið magn af marglyttum sem liggja þar eftir að hafa rekið á land. Það eru nokkrar tegundir af marglyttum við Íslandsstrendur en þó eru tvær tegundir sem eru í sérstaklega miklu magni. Það eru bláglytta (Aurelia aurita) og brennihvelja (Cyanea capillata). Marglyttur virðast verða meira…Lesa meira

true

Forseti ASÍ hvetur til hækkunar atvinnuleysisbóta

Almennt er reiknað með að atvinnulausu fólki fjölgi í haust þegar uppsagnafrestur rennur út hjá mörgum. Ekki hvað síst mun fjölga í hópi starfsfólks ferðaþjónustu og tengdra greina sem missir framfærslu sína á vinnumarkaði. „Þetta er veruleiki sem blasir við allt of mörgum en í júní reiddu 16.165 einstaklingar sig á atvinnuleysisbætur. Það þarf því…Lesa meira

true

Reyna mun á skipulagningu og reglur um sóttvarnir í göngum og réttum

Senn líður að því að bændur landsins leggi af stað í göngur og smali fé af fjalli. Fyrir liggur að vegna Covid-19 verði einhverjar hömlur settar á fjölda þeirra sem mega mæta í réttir og þá er sömuleiðis ljóst að víða þarf að breyta fyrirkomulagi í göngum. „Í ljósi þess ástands sem nú er vegna…Lesa meira

true

Ákvörðun tekin um að komufarþegar fari í fimm daga sóttkví

Síðastliðinn föstudag kynnti ríkisstjórnin mjög svo hertar aðgerðir til að koma í veg fyrir aukin Covid-19 smit hér á landi. Frá og með deginum í dag, 19. ágúst, skulu allir komufarþegar til landsins, bæði þeir sem eru búsettir hér á landi og þeir sem eru í styttri erindagjörðum, verða skimaðir við komuna til landsins og…Lesa meira

true

Strangar sóttvarnakröfur gerðar til liða

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt nýjar reglur um framkvæmd æfinga og knattspyrnuleikja. Hefur hún verið staðfest af Íþróttasambandi Íslands og heilbrigðisyfirvöldum, þannig að knattspyrnuleikir geti hafist að nýju. Markmið reglnanna er vitaskuld að tryggja að áfram verði hægt að leika knattspyrnu á Íslandi þrátt fyrir Covid-19. Eins og greint var frá á vef Skessuhorns fyrr…Lesa meira

true

Líklegt að strandveiðum sé að ljúka

Í frétt á vef Fiskistofu í gær segir að samkvæmt reglugerð nr. 724/2020 um strandveiðar skuli stofnunin stöðva strandveiðar þegar sýnt er að leyfilegum heildarafla skv. 2. gr. verði náð. Eftir miðvikudaginn 12. ágúst voru eftirstöðvar af 10.720 tonna veiðiheimildum af þorski rúm 557 tonn. Á dagskrá ríkisstjórnarfundar í dag mun Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra…Lesa meira