Fréttir

true

Kvöldlokun Vesturlandsvegar verður áfram næstu þrjú kvöld

Vegna malbikunarvinnu var Vesturlandsvegur lokaður milli Geldingaár og Lyngholts í Hvalfjarðarsveit í gærkvöldi milli klukkan 20:00 og 07:00 að morgni. Verður vegurinn einnig lokaður á sama kafla í kvöld og næstu tvö kvöld þar á eftir, vegna framkvæmdanna. Á meðan á vinnu stendur er sett upp hjáleið um Hvalfjarðarveg og Borgarfjarðarbraut. Þannig þarf fólk sem…Lesa meira

true

Sóttu veikan sjómann í Norðurfjörð

Björgunarsveitin í Árneshreppi á Ströndum og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út um klukkan 14 í gær vegna veiks sjómanns norður af Norðurfirði. Sjómaðurinn, sem var einn um borð í trillu á strandveiðum, náði sjálfur að kalla eftir aðstoð. Björgunarsveitarfólk fór ásamt öðrum heimamönnum á móti sjómanninum, hlúðu að honum og fylgdu honum til hafnar. Þyrla…Lesa meira

true

Aldrei hærra hlutfall fyrstu kaupa

Tæpur þriðjungur þeirra sem keyptu fasteign á fyrri helmingi ársins voru að kaupa sína fyrstu eign. Hefur hlutfall fyrstu kaupenda aldrei verið hærra, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar benda enn fremur til þess að um fjórðungur þeirra sem enn búa enn í foreldrahúsum séu í fasteignahugleiðingum.…Lesa meira

true

Saga guðanna eftir Þórhall Heimisson

Bókin Saga guðanna er komin út hjá bókaútgáfunni Sæmundi. Hér er á ferð fróðleg og yfirgripsmikil bók þar sem lesandanum er boðið í ferðalag um heim trúarbragðanna. Fjallað er á aðgengilegan hátt um það sem helstu trúarbrögð mannkyns hafa sjálf fram að færa, saga þeirra rakin í stórum dráttum og helstu einkennum þeirra lýst. „Með…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur lokaður næstu fjögur kvöld

Vegna malbikunarframkvæmda verður Vesturlandsvegur lokaður milli Geldingaár og Lyngholts  í Hvalfjarðarsveit næstu fjögur kvöld, 17. ágúst – 20. ágúst, frá kl. 20:00 til 07:00 hverju sinni. Á meðan malbikunarvinnu stendur verður vegurinn lokaður og umferð beint um hjáleið um Hvalfjarðarveg og Borgarfjarðarbraut.Lesa meira

true

Slasaðist á fæti á leiðinni að Glymi

Um klukkan 18:30 í gærkveldi fengu björgunarsveitir á Vesturlandi boð um að koma slasaðri konu til aðstoðar á gönguleiðinni að fossinum Glymi í Hvalfirði. Björgunarsveitarmenn komust á fjórhjóli til konunnar og gátu ekið með hana niður að bílastæði í veg fyrir sjúkrabíl. Hún var ekki alvarlega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu. Verkefninu var lokið tæpum…Lesa meira

true

Þrettán marka tap Snæfellinga

Snæfellingar áttu sér ekki viðreisnar von gegn KFR, þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var í Stykkishólmi, þar sem gestirnir skoruðu hvert markið á fætur öðru en Snæfell komst ekki á blað. Gestirnir skoruðu sjö mörk í fyrri hálfleik og héldu áfram í þeim síðari, þar sem þeir skoruðu…Lesa meira

true

Góður sigur á Húsavík

Káramenn unnu góðan útisigur á Völsungi, 2-3, þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var norður á Húsavík. Heimamenn fengu óskabyrjun, þegar Elvar Baldvinsson kom Völsungi yfir strax á 2. mínútu leiksins. En Káramenn voru betri í fyrri hálfleik. Þeir jöfnuðu metin á 20. mínútu með marki frá Páli Sindra…Lesa meira

true

Þurftu að lúta í gras á heimavelli

Víkingur Ó. beið lægri hlut gegn Þrótti R. á heimavelli, 1-2, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu á laugardagskvöld. Var þetta fyrsti sigur Þróttar í deildinni í sumar. Ólafsvíkingar fengu prýðilegt færi strax í upphafi leiksins. Ívar Reynir Antonsson fékk þá boltann á fjærstöng eftir fyrirgjöf, átti gott skot að marki sem…Lesa meira

true

Vítaspyrna í uppbótartíma réði úrslitum

Skagamenn unnu dramatískan sigur á Fylki, 3-2, þegar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Leikið var á Akranesi. Snemma leiks settu Skagamenn boltann í stöngina en þess utan voru gestirnir hættulegri fram á við í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir á 39. mínútu þegar Arnór Gauti Ragnarsson skoraði eftir fyrirgjöf…Lesa meira