Fréttir

true

Lokað vegna veðurs hjá Póstinum

Á morgun, föstudaginn 14. febrúar, verður engin starfsemi hjá Íslandsdpósti á þeim svæðum þar sem rauð veðurviðvörun er í gildi. “Á öðrum svæðum þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi verða aðstæður metnar í fyrramálið en búast má við röskun á þjónustu um allt land á morgun. Ef veður og aðstæður batna til muna verður…Lesa meira

true

Engin kennsla í FVA á morgun

„Kennsla í FVA fellur niður föstudaginn 14. febrúar vegna aftakaveðurs og lokunar Vegagerðarinnar á veginum um Kjalarnes og við Hafnarfjall,“ segir í tilkynningu frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.Lesa meira

true

Búast við víðtækum vegalokunum

Vegagerðin býst við að vegum verði lokað fyrir umferð vegna veðurs í nótt og fyrramálið. Í tilkynningu kemur fram að eftirfarandi lokanir séu líklegar: Kjalarnes, vegna hviðuástands kl. 03-14. Hafnarfjall, vegna hviðuástands kl. 02-14 Brattabrekka, vegna ófærðar og skyggnis kl. 02-16 Vatnaleið, vegna ófærðar og skyggnis frá klukkan 05. Holtavörðuheiði vegna ófærðar og skyggnis frá…Lesa meira

true

Aftakaveðri spáð í nótt og á morgun – óvissustigi lýst yfir

Mikill viðbúnaður er vegna mjög djúprar lægðar sem nú nálgast landið úr suðvestri. Skellur hún á sunnanverðu landinu seint í kvöld. Veðrið um vestanvert landið verður verst í fyrramálið og fram yfir hádegi. Almannavarnir ríkislögreglustjóra hafa lýst yfir óvissustigi um allt land. Ákvörðunin er tekin eftir hádegi í dag, í samráði við alla lögreglustjóra landsins,…Lesa meira

true

Gagnlegt að fylgjast með ferðum lægðar á windy.com

Fyrir þá sem vilja fylgjast með þróun og umfangi lægðarinnar sem nú nálgast landið úr suðvestri er gagnlegt að benda á veðurvefinn windy.com. Þar má sjá stöðu lægðarinnar í rauntíma og sömuleiðis spá um ferð hennar og umfang. Meðfylgjandi skjáskot er fyrir klukkan 8 í fyrramálið, föstudaginn 14. febrúar. Sjá nánar á: windy.comLesa meira

true

Bilun í vef Veðurstofunnar

„Stundum gerist allt í einu. Á sama tíma og lægðin nálgast landið er bilun í tölvukerfinu okkar þannig að spár eru ekki að birtast á vefnum,“ segir í tikynningu á Facebook-síðu Veðurstofunnar nú rétt í þessu. Vefur Veðurstofunnar hefur legið niðri frá því fyrir hádegi. „Unnið er að viðgerð og við vonum að upplýsingar fari…Lesa meira

true

Mikil ánægja með leikskólana en óánægja með skipulagsmál

Leikskólar Borgarbyggðar koma vel út í þjónustukönnun Gallup um þjónustu sveitarfélaga fyrir árið 2019. Könnunin var gerð í lok síðasta árs og byrjun þessa. Niðurstöðurnar byggja á svörum 159 íbúa Borgarbyggðar sem lentu í tæplega ellefu þúsund manna tilviljunarúrtaki íbúa 20 stærstu sveitarfélaga landsins. Heilt yfir sögðust 77% svarenda vera ánægðir með Borgarbyggð sem stað…Lesa meira

true

G.Run í Grundarfirði hlaut forvarnaverðlaun VÍS

Forvarnaverðlaun tryggingafélagsins VÍS voru afhent í Reykjavík í gær. Verðlaunin hlýtur það fyrirtæki sem þykir skara fram úr í öryggismálum og er öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Að þessu sinni hlaut sjávarútvegsfyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði forvarnarverðlaunin. G.Run er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á bolfiski. Í upphafi árs 2019 opnaði…Lesa meira

true

Ekið á mann á gangbraut

Ekið var á mann þar sem hann gekk yfir gangbraut við dvalarheimilið Höfða á Akranesi rétt upp úr hádegi á þriðjudag. Ökumaður stöðvaði för sína til að hleypa manninum yfir gangbrautina. Maðurinn gekk af stað þegar bifreið sem kom úr gagnstæðri átt var ekið á manninn á litlum hraða, að sögn lögreglu. Maðurinn kenndi sér…Lesa meira

true

Bakkað á mann í Stykkishólmi

Bakkað var á mann í Stykkishólmi á þriðjudagsmorgun í liðinni viku. Atvikið átti sér stað á bílastæðinu fyrir utan Bónus um tíuleytið. Maðurinn gekk aftur fyrir bíl sem verið var að bakka á bílastæðinu. Ökumaður bílsins sá manninn ekki og bakkaði yfir hægri fót hans. Maðurinn slapp með minniháttar meiðsli, en kenndi sér eymsla í…Lesa meira