Fréttir

true

Bikarúrslitin bíða Skallagríms

Skallagrímskonur mæta KR í úrslitaleik Geysisbikarsins á morgun, eftir frækinn sigur á Haukum, 86-79, í undanúrslitum bikarsins í gærkvöldi. Skallagrímskonur mættu ákveðnar til leiks í Laugardalshöllinni og voru mun sterkara lið vallarins í upphafsfjórðungnum. Keira Robinson fór þar fremst í flokki, en hún skoraði 15 af 27 stigum Skallagríms í fyrsta leikhluta. Borgnesingar léku afar…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á tveimur stöðum í Borgarfirði

Rafmagnsbilanir hafa verið nokkuð víða í nótt og morgun einkum á Suðurlandi. Á Vesturlandi hefur rafmagn víðast hvar haldist inni, en töluvert flökt er á því, meðal annars á Akranesi. Nú er rafmagnsbilun á línunni frá Deildartungu í Húsafell í Borgarfirði, en bilanaleit stendur yfir. Sömuleiðis er ragmagnslaust í Hvalfirði og Svínadal. Ef fólk hefur…Lesa meira

true

Allir helstu stofnvegir lokaðir

Nú eru allir helstu þjóðvegir í landshlutanum lokaðir vegna veðurs og færðar. Þar á meðal Vesturlandsvegur um Kollafjörð, vegurinn fyrir Hafnarfjall, en þar fer vindhraði í 61 metra á sekúndu í hviðum. Þá er vegurinn um Bröttubrekku og Holtavörðuheiði lokaður. Eins og sést á meðfylgjandi skjámynd af vef Vegagerðarinnar er engin umferð um þessa vegi…Lesa meira

true

Óveðrið nær hámarki fyrir hádegi í dag

Óveðrið, sem spáð var í dag, er nú í hámarki um vestanvert landið. Gera má ráð fyrir að draga fari úr vindi um hádegi í dag, en áfram verður þó bálhvasst fram eftir deginum. Á Faxaflóasvæðinu er nú rauð viðvörun í gildi og verður til hádegis þegar hún verður appelsínugul til klukkan 17. Austan rok…Lesa meira

true

Iðnaðarráðherra tók á móti Köku ársins

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir iðnaðarráðherra tók í morgun á móti Köku ársins á skrifstofu sinni í atvinnuvegaráðuneytinu. Í Köku ársins 2020 er rjómasúkkulaði, saltkarmellumús og Nóa tromp. Höfundur kökunnar er Sigurður Alfreð Ingvarsson, bakari hjá bakaríinu Hjá Jóa Fel. Landssamband bakarameistara efnir árlega til keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila…Lesa meira

true

Frumvarp um lágmarksíbúafjölda í samráðsgátt

Drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum, sem innleiðir á ný ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Samkvæmt frumvarpinu verður lágmarksíbúafjöldi 250 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og 1.000 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila…Lesa meira

true

Fella úr gildi byggingarleyfi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað 23. janúar síðastliðinn upp úrskurð í máli sem snertir breytingar á íbúðarhúsinu Egilsgötu 6 í Borgarnesi, en húsinu var fyrir nokkrum árum breytt í þrjár stúdíóíbúðir á neðri hæð og eina íbúð á efri hæð og þar er rekið gistiheimili. Í úrskurði nefndarinnar segir: „Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans…Lesa meira

true

Skallagrímur mætir KR í úrslitaleik Geysisbikars kvenna

Kvennalið Skallagríms var rétt í þessu að sigra Hauka í undanúrslitum Geysisbikars kvenna. Leikurinn fór 86-79 fyrir Borgnesinga sem leiddu allan leikinn, byrjuðu af krafti og létu forystuna aldrei af hendi. Keira Robinson átti stórleik fyrir Skallagrím, skoraði rúmlega helming stiga liðsins, eða 44. Í fyrri undanúrslitaleiknum bar KR sigurorð af Val. Úrslitaleikur Geysisbikarsins, þar…Lesa meira

true

Viðvörunarstig fært upp í rautt

Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða veðurviðvörun vegna óveðursins sem spáð er á morgun. Viðvörunin gildir fyrir Faxaflóa, höfuðborgarsvæðið og Suðurland frá kl. 6:00 í fyrrmálið og til hádegis. Á Faxaflóasvæðinu er spáð austan ofsaveðri eða fárviðri með vindhraða á bilinu 28 til 35 m/s. Búast má við hættulegum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 55…Lesa meira

true

Jóhann Ársæll skellti í „300 leik“ í Katar

Unglingalandslið Íslands í keilu er nú statt í Katar og keppir þar á vináttuleikum við heimamenn og fulltrúa fjögurra annarra þjóða. Skúli Freyr Sigurðsson er aðalþjálfari liðsins en aðstoðarþjálfari hans er Skagakonan Jónína Björg Magnúsdóttir. Þetta er í tíunda skiptið sem leikarnir eru haldnir í Doha í Katar. „Krakkarnir borga flugið sjálfir, en fæði og…Lesa meira