Fréttir

true

Bikarinn á leiðinni í Borgarnes!

Kvennalið Skallagríms var rétt í þessu að landa sigri í úrslitaleik Geysisbikarsins í körfubolta 2020. Báru stelpurnar sigurorð af KR með stigatölunni 66-49. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik, en í upphafi þess síðari sigldu Borgnesingar framúr og litu aldrei til baka, sömuleiðis sá KR liðið ekki til sólar. Bikarinn er því á leið…Lesa meira

true

Hreinsa seltu af tengivirki á Brennimel

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar, ásamt Slökkviliði Borgarbyggðar, hafa í kvöld unnið við að hreinsa seltu af spennum í tengivirki Landsnets á Brennimel og einnig í tengivirkinu á Klafastöðum. Selta í tengivirkinu á Brennimel snemma í kvöld varð þess valdandi að rafmagnslínur leysti út og mikið högg kom á kerfi Landsnets og flökt kom á rafmagn…Lesa meira

true

Heitavatnsdælum slær út og spara þarf vatn

Miklar rafmagnstruflanir hafa verið á Vesturlandi undanfarna tíma. Þær valda því að dælur veitukerfa Veitna á suðurhluta Vesturlands slá sífellt út og starfsfólk Veitna situr við að slá þeim inn aftur. Þetta hefur áhrif á það magn sem hægt er að dæla af heitu vatni og nú er staðan á því þannig að loka þarf…Lesa meira

true

Eignatjón og einn slasaður í óveðrinu

Björgunarsveitir um landshlutann allan hafa staðið í ströngu frá því snemma í morgun, sem og aðrir viðbragðsaðilar. Að sögn lögreglu er mest um minniháttar eignatjón af völdum óveðrusins. Eitt slys er bókað í landshlutanum að sögn lögreglu. Maður féll fyrir utan bíl sinn á Kalmansvöllum á Akranesi kl. 6:50 og er líklega handleggsbrotinn. Lögregla var…Lesa meira

true

Hótel Hafnarfjall til sölu

Hótel Hafnarfjall hefur verið auglýst til sölu. Hótelið er sem kunnugt er staðsett við þjóðveg 1 skammt sunnan Borgarness. Alls er húsið 661 fermetri að stærð á tveimur hæðum með 22 herbergjum, 41 fermetra stúdíóíbúð, 50 manna veitingasal, eldhúsi, starfsmannaaðstöðu og öðru sem við kemur hótelrekstri. Fimm smáhýsi hafa verið reist við hótelið á síðustu…Lesa meira

true

Myndin „Hvernig á að vera klassa drusla“ frumsýnd í byrjun apríl

Gamamyndin „Hvernig á að vera klassa drusla“ eftir Ólöfu Birnu Torfadóttur verður frumsýnd 3. apríl í Smárabíói í Kópavogi. Þetta er fyrsta kvikmynd Ólafar í fullri lengd en áður hefur hún gert skemmtilegar stuttmyndir. Kvikmyndin er tekin upp í Hvalfjarðarsveit og á Akranesi og fjallar um tvær vinkonur sem ákveða að fara að vinna á…Lesa meira

true

Öryggismyndavélar við alla stærri bæi

Stefnt er að því að setja upp öryggismyndavélar við alla stærri þéttbýliskjarna í landshlutanum. Það er Lögreglan á Vesturlandi, sveitarfélögin í landshlutanum og Neyðarlínan sem vinna að verkefninu í sameiningu. Að sögn Jóns S. Ólasonar, yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi, hefur uppsetning slíkra myndavéla verið samþykkt á Akranesi, í Borgarbyggð og Stykkishólmi. Þá sé til…Lesa meira

true

Stjórnvöld tryggi að ekki verði dregið úr snjómokstri

Á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í síðustu viku var rætt um snjómokstur á Vesturlandi og mikilvægi þess að ekki verði dregið úr mokstri þrátt fyrir að fjárveitingar hafi ekki tekið mið af þeim aðstæðum sem verið hafa í vetur. Stjórn SSV samþykkti bókun þess efnis: „Stjórn SSV skorar á Vegagerðina og samgöngu- og…Lesa meira

true

Sló í 71 metra á sekúndu við Hafnarfjall

Býsna hvasst er nú um vestanvert landið samhliða því að skil lægðarinnar færast norðar. Nú á ellefta tímanum í morgun fór vindhraði í hviðum upp í 71 metra á sekúndu í sjálfvirka vindhraðamælinum við Hafnarfjall. Á meðfylgjandi mynd má sjá þróunina frá því veður tók að versna í gær. Gert er ráð fyrir að veður…Lesa meira

true

Skuldir Ísfisks metnar 160 milljónum króna umfram eignir

Greint var frá því í síðustu viku að stjórn Ísfisks hf. hafði þá óskað eftir að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Héraðsdómur Vesturlands hefur samþykkt gjaldþrotaskipti og Ingi Tryggvason hdl. hefur verið skipaður skiptastjóri. Fram kemur í beiðni um skipti að eignir búsins eru taldar 627 milljónir króna en skuldir 788 milljónir og taldi skuldari…Lesa meira