Fréttir

true

Kynna skýrslu um safnamál í Borgarbyggð

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur boðað til opins kynningarfundar í Hjálmakletti í Borgarnesi um skýrslu vinnuhóps um safnamál í Borgarbyggð. Skessuhorn hefur ítarlega kynnt skýrslu þessa sem þykir nokkuð umdeild. Fundurinn verður miðvikudaginn 11. apríl og hefst klukkan 20. Þar verður skýrslan kynnt, sem og þær hugmyndir sem að baki liggja. Frummælendur verða m.a. Sigurjón Þórðarson ráðgjafi…Lesa meira

true

Íslenskir háskólanemar vinna mikið og eru ánægðir með gæði kennslu

Íslenskir háskólanemar eru ánægðir með gæði kennslu, skipulag náms og námsaðstöðu en þeir vinna mikið í samanburði við aðra háskólanemendur. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri samevrópskri könnun sem unnin var af Euostudent. Um er að ræða samanburð á högum um 320.000 háskólanema í 28 löndum á evrópska háskólasvæðinu. Þetta er í fyrsta sinn sem…Lesa meira

true

Uppsagnir á Grundfirðingi SH 24

Línubáturinn Grundfirðingur SH 24 mun leggja að bryggju í Grundarfirði í síðasta skipti í lok maí næstkomandi. Búið er að segja upp allri áhöfn skipsins og verður því lagt í lok maí. Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Soffaníasar Cecilssonar hf. sem gerir út skipið, sagði reksturinn hafa þyngst mikið á þessu ári. „Rekstargrundvöllur Grundfirðings  SH 24 er…Lesa meira

true

Harður árekstur

Árekstur tveggja bíla varð á fjórða tímanum síðastliðinn laugardag á þjóðveginum skammt frá Akranesi. Þrír voru í bílunum og voru allir fluttir til læknisskoðunar á sjúkrahús. Að sögn lögreglu slasaðist fólkið ekki alvarlega. Við áreksturinn valt annar bíllinn, fór yfir girðingu og hafnaði í skurði.Lesa meira

true

Framúrskarandi í matreiðslu á íslensku lambakjöti

Bjarteyjarsandur og Narfeyrarstofa meðal verðlaunahafa Nú í hádeginu veiddi Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, 21 veitingastað viðurkenninguna Icelandic Lamb – Award of Excellence. Viðurkenning þessi er veitt veitinga- og gististöðum fyrir framúrskarandi matreiðslu á íslensku lambakjöti og eftirtektarverð störf við kynningu á íslenska lambakjötinu til ferðamanna. Tveir staðir á Vesturlandi eru handhafar verðlaunanna í…Lesa meira

true

Arnar Guðjónsson tekur við Stjörnunni

Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfuknattleik. Mun hann stýra liðinu í Domino‘s deild karla frá og með næsta keppnistímabili. Arnar sleit barnsskónum í Reykholti en steig sín fyrstu skref sem körfuknattleiksþjálfari með Sindra á Höfn í Hornafirði árið 2005. Þaðan fór hann á Selfoss þar sem hann var aðstoðarþjálfari FSu…Lesa meira

true

Randi og Þytur sigurvegarar í fimmgangi

Keppt var í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg í gær. Þau Þytur og Randi Holaker frá Skáney vörðu með nokkrum yfirburðum verðlaunasæti sitt frá síðasta ári. Úrslit urðu þessi: Randi Holaker og Þytur frá Skáney – 6,62 Siguroddur Pétursson og Hængur frá Bergi – 6,36 Líney María Hjálmarsdóttir og Þróttur frá Akrakoti –…Lesa meira

true

Skyrsýning og fræðslusetur opnað á Erpsstöðum

Á Rjómabúinu Erpsstöðum í Dölum er um þessar mundir verið að leggja lokahönd á uppsetningu sögusýningar og fræðsluseturs á íslensku skyri. Sýninguna hafa þau Þorgrímur og Helga á Erpsstöðum unnið í samvinnu við Matís, Econom musee, Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur, hönnuði og Auði Lóu Guðnadóttur listamanni og verður formleg opnun næstkomandi sunnudag, 8. apríl. „Hugmyndin hefur…Lesa meira

true

Mýraeldahátíð hefst með opnu fjósi í dag

Kúabóndinn og formaður Búnaðarfélags Mýramanna, Sigurjón Helgason á Mel, hefur í nógu að snúast þessa dagana. Hann var kjörinn formaður búnaðarfélagsins í fimmta sinn á dögunum og er nú ásamt góðu fólki að undirbúa Mýraeldahátíð sem haldin verður í Faxaborg í Borgarnesi á morgun, laugardag klukkan 13. Auk félagsstarfanna er Sigurjón kúabóndi og býr ásamt…Lesa meira

true

Fyrirlestur um heilbrigði hestsins og betri líðan

Áhugaverður fyrirlestur verður fluttur á vegum fræðslunefndar Hestamannafélagsins Borgarfirðings og er hann ætlaður fyrir alla sem stunda hestamennsku. „Helga Gunnarsdóttir dýralæknir kemur til okkar í félagsheimili Borgfirðings þriðjudaginn 10. apríl kl. 19:30 og verður með fyrirlestur um heilbrigði hestsins, fyrirbyggjandi aðgerðir, hvað getur þú gert til að láta hestinum líða betur og endast lengur glaður…Lesa meira