Fréttir

true

Inga Elín stigahæst á Ásvallamóti

Inga Elin Cryer sundkona af Akranesi keppti á Ásvallamóti í Hafnarfirði um liðna helgi. Náði hún flottum árangri; bronsi í 200m flugsundi, silfri í 50m flugsundi en gulli í 100m flugsundi og 200m skriðsundi. Einnig varð hún stigahæst kvenna á mótinu og fékk peningaverðlaun fyrir það. Mjög flottur árangur þrátt fyrir erfiðar æfingar að undanförnu.…Lesa meira

true

Hvasst á norðanverðu Snæfellsnesi

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er greiðfært á öllum leiðum á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru á Fróðárheiði. Vakin er athygli á að hvasst er við Búlandshöfða og víðar á norðanverðu Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Landssamband kvæðamanna kemur saman á Bifröst

Stemma, landssamband kvæðamanna, heldur landsmót sitt á Bifröst í Borgarfirði dagana 20. og 21. apríl næstkomandi. Meðal aðildarfélaga er Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti. Dagskrá landsmótsins hefst klukkan 20 föstudaginn 20. apríl með kvæðatónleikum og verða flytjendur ýmsir kvæðamenn. Í boði á laugardaginn verða námskeið í kvæðalögum, kveðskap og bragfræði og eru allir velkomnir. Meðal dagskráratriða…Lesa meira

true

Björg flutti varahluti yfir í nöfnu sína

Björgunarbáturinn Björg í Rifi flutti á dögunum varahluti og viðgerðarmann út í Björgu EA-7 sem er nýlegur togari í eigu Samherja. Björgunarbáturinn Björg hitti nöfnu sína rétt norðan við Rif þar sem varahlutirnir og viðgerðarmaðurinn voru fluttir á milli skipa en kælikerfi Bjargar EA var bilað. Veður var gott þennan dag og gekk ferðin hratt…Lesa meira

true

Opna Borgarfjarðarmótið í bridds

Hið árlega Opna Borgarfjarðarmót í tvímennings bridds hefst á fimmtudaginn. Spiladagar verða þrír, sá fyrsti fimmtudagurinn 12. apríl á Akranesi klukkan 19:30 og svo mánudagskvöldin 16. og 23. apríl í Logalandi en þar hefst spilamennskan að venju kl. 20:00. Það eru Bridgefélag Borgarfjarðar og Bridgefélag Akraness sem taka höndum saman um þetta árlega vormót félaganna.Lesa meira

true

Hagnaður af þorrablóti rann til félagasamtaka

Hópur í árgangi 1971, sem kallar sig Club ´71, boðaði í dag til sín fulltrúa nokkurra íþróttafélaga á Akranesi auk Björgunarfélags Akraness. Tilefnið var að úthluta ágóðanum sem varð af þorrablóti Akurnesinga sem haldið var í íþróttahúsinu við Vesturgötu 20. janúar síðastliðinn. Sem kunnugt er var það umræddur árangur á Akranesi sem beitti sér fyrir…Lesa meira

true

Komnar með bakið upp við vegg

Skallagrímur og Haukar mættust öðru sinni í undanúrslitaviðureign Domino‘s deildar kvenna á föstudagskvöld. Leikið var í Borgarnesi. Deildarmeistarar Hauka stjórnuðu ferðinni og sigruðu að lokum með ellefu stigum, 64-75. Haukaliðið mætti gríðarlega ákveðið til leiks, spilaði þétta vörn og gerði Skallagrímskonum mjög erfitt fyrir. Þær hittu aðeins úr þremur af fyrstu 18 skotum sínum utan…Lesa meira

true

Hulda Birna hættir hjá ÍA

Hulda Birna Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. ágúst næstkomandi. Hún hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá 2016 en lætur nú að störfum af persónulegum ástæðum. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef knattspyrnufélagsins. „Það hefur verið spennandi áskorun fyrir mig að takast á við að vera framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Undirbúa stofnun Sterkra Skagamanna

„Knattspyrnan á Akranesi á sér langa og farsæla sögu en síðustu ár hefur gengi félagsins ekki verið í samræmi við væntingar stuðningsfólks. Við Skagamenn höfum metnað til komast aftur á sigurslóð og því er nauðsynlegt að blása til sóknar,“ segir í bréfi sem hópur Skagamanna hefur sent stuðningsfólki knattspyrnufélagsins í þeim tilgangi að stofnað verði…Lesa meira

true

Nýnemum fækkar í starfsnámi á framhaldsskólastigi

Nýnemum á framhaldsskólastigi fer fækkandi og sífellt fleiri nýnemar kjósa að hefja framhaldsskólanám í bóknámi fremur en starfsnámi. Á tímabilinu 1997-2016 voru nýnemar á framhaldsskólastigi fæstir árið 2002, 4.268, en flestir 2006, 5.429 talsins. Fjöldi nýnema helst í hendur við fjölda 16 ára íbúa, en haustið 2006 hóf einmitt fjölmennur árgangur 16 ára landsmanna nám…Lesa meira