
Systkinin Helgi Eyleifur og Halldóra Lóa Þorvaldsbörn frá Brekkukoti í Reykholtsdal stofnuðu Laufeyju ísgerð síðastliðinn vetur. Í sumar var unnið að því að koma upp vinnslurými í hluta útihúsanna og sala á ísnum hófst síðan í desembermánuði. „Á jólamarkaði í Nesi í Reykholtsdal, sem haldinn var 9. desember, þá seldum við Laufeyjarísinn í fyrsta sinn.…Lesa meira








