Fréttir

true

Vilja að innri endurskoðun OR sé aðskilin borginni

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lagt fram erindi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur þar sem mælst er til þess að eigendur OR samþykki að innri endurskoðun OR verði unnin af borginni, stærsta eiganda fyrirtækisins. Bókað var á fundi byggðarráðs: „Út frá almennum viðmiðunum um góða stjórnsýslu þá telur byggðarráð Borgarbyggðar sér ekki fært að…Lesa meira

true

Andlát – Þorsteinn frá Hamri

Þorsteinn Jónsson skáld, sem alla tíð kenndi sig við bæinn Hamar í Þverárhlíð, er látinn 79 ára að aldri. Þorsteinn var eitt fremsta skáld þjóðarinnar en fyrsta bók hans, Í svörtum kufli, kom út fyrir tæpum sextíu árum. Þorsteinn fékkst auk ritstarfa við þýðingar, prófarkalestur og gerð útvarpsþátta. Hann hlaut fjölda viðurkenninga fyrir skálskap sinn…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímur mátti sætta sig við tap gegn Vestra, 95-89, eftir æsispennandi lokamínútur þegar liðin mættust á Ísafirði í gær. Skallagrímsmenn höfðu heldur yfirhöndina í fyrsta leikhluta en heimamenn voru aldrei langt undan. Borgnesingar náðu mest sex stiga forskoti um miðjan leikhlutann en áður en hann var úti náðu heimamenn að komast yfir. Vestri leiddi með…Lesa meira

true

Snæfell tapaði stórt gegn Breiðabliki

Snæfell mætti Breiðabliki í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var í Kópavogi. Heimamenn höfðu undirtökin frá því seint í fyrsta leikhluta og unnu að lokum öruggan sigur, 113-80. Mikið jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og aðeins munaði einu stigi á liðunum um miðjan fyrsta leikhluta í stöðunni 16-15. Þá náðu…Lesa meira

true

Bílslys í Norðurárdal

Laust eftir klukkan 20:00 í gærkvöldi varð bílslys í Norðurárdal í Borgarfirði þegar tveir bílar skullu saman. Tildrög slyssins voru þau að ökumaður bíls á suðurleið reyndi framúrakstur og lenti við það framan á öðrum bíl sem ekið var í norðurátt. Beita þurfti klippum til að ná farþega úr öðrum bílnum. Var hann fluttur með…Lesa meira

true

Spánverjinn Gonzalo til liðs við Víking Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík hefur samið við spænska leikmanninn Gonzalo Zamorano Leon um að spila með liðinu í Inkasso deildinni næsta sumar. Þorsteinn Haukur Harðarson framkvæmdastjóri félagsins segir að Gonzalo, sem er fæddur árið 1995, hafi leikið með Hugin á Seyðisfirði á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 16 mörk í 22 leikjum i 2. deildinni. Gonzalo…Lesa meira

true

Níutíu ár frá upphafi björgunarsveitastarfs

Í dag eru níutíu ár frá stofnun Slysavarnafélags Íslands, en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi. Í tilefni tímamótanna fagna félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörg tímamótunum víða um land. Klukkan 20:00 verður afmælisveisla í húsnæði allra björgunarsveita og slysavarnadeilda hringinn í kringum landið, sem endar á því að skotið verður upp hvítri…Lesa meira

true

Sautján komur skemmtiferðaskipa bókaðar á Akranes

Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra Faxaflóahafna eru alls sautján komur skemmtiferðaskipa bókaðar á Akranes næsta sumar. LaBoreal sem kom í fyrra eina ferð á Akranes hefur boðað komu sína að nýju 9. ágúst í sumar. Þá hefur útgerð skemmtiferðaskipsins M/S Panorama bókað 16 komur til á Akraness næsta sumar, frá 11. júní til 27. september.…Lesa meira

true

Tjaldurinn mættur á Borgarvoginn

Það er alltaf fagnaðarefni þegar hinn vinalegi vaðfugl tjaldurinn mætir eftir vetursetu á fjarlægum slóðum. Flestir tjaldar eru farfuglar en þó er talið að um þrjú þúsund fuglar hafi hér vetursetu. Tjaldurinn er nú kominn á Borgarvoginn norðan við Borgarnes en meðfylgjandi mynd tók Þorleifur Geirsson af stórum hópi sem tyllt hafði sér niður í…Lesa meira

true

Sorptimistar þakka góðar viðtökur við pönnukökusölu

Soroptimistaklúbbur Akraness vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem studdu félagið í starfi sínu með því að kaupa pönnukökur í tilefni Bóndadagsins 19. janúar síðastliðinn. Á Íslandi eru 19 soroptimistaklúbbar. „Klúbburinn á Akranesi var stofnaður 1983 og í dag eru klúbbfélagar 40. Klúbburinn hefur styrkt ýmis góð málefni bæði í heimabyggð…Lesa meira