Fréttir

true

Ný tæki á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins

Krabbameinsfélag Íslands hefur nú endurnýjað að stórum hluta tækjabúnað Leitarstöðvarinnar til skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini. Safnað var fyrir tækjunum í Bleiku slaufunni 2016. Alls söfnuðust 132 milljónir í átakinu sem runnu óskiptar til tækjakaupanna. Endurnýjunin gerist í tveimur áföngum og hafa nú hópleitartæki verið uppfærð. „Ávinningurinn af endurnýjuðum tækjabúnaði er meðal annars minni geislun og…Lesa meira

true

Google Maps ekki treystandi

Skessuhorni barst ábending frá starfsfólki orlofshúsanna í Svignaskarði um að Svignaskarð væri rangt skráð inni í Google Maps kortaforritinu. Er starfsfólkið orðið langþreytt á því að eyða föstudagseftirmiðdegi, þegar sóttir eru lyklar að húsunum, í að leiðsegja fólki út úr ógöngum sem það er komið í vegna rangrar skráningar í Google Maps. Þeir sem eiga…Lesa meira

true

Mikið af loðnu að sjá norðan við fyrra veiðisvæði

Víkingur AK er nú á leiðinni frá Vopnafirði til Reykjavíkur, þar sem hitt uppsjávarveiðiskip HB Granda, Venus NS, er í höfn. Þess er beðið með óþreyju að niðurstöður Hafrannsóknastofnunar á mælingu stærðar og úbreiðslu loðnustofnsins liggi fyrir en þá fyrst verður ákveðið hvort bætt verður við útgefinn byrjunarkvóta. ,,Við lukum síðasta loðnutúrnum í bili með…Lesa meira

true

Telur félagið öflugra eftir sameiningu

Eins og Skessuhorn hefur greint frá var gengið frá formlegri sameiningu hestamannafélaganna Skugga og Faxa þriðjudaginn 16. janúar. Fékk hið nýja sameinaða félag nafnið Hestamannafélagið Borgfirðingur. Þórdís Arnardóttir var kosin fyrsti formaður félagsins en hún hefur verið virkur félagi í Faxa í fjölmörg ár, auk þess sem hún var í stjórn samningarnefndar og í framkvæmdanefndinni…Lesa meira

true

Misjafn mánudagur hjá Vesturlandsliðunum

Heil umferð var leikin í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur vann góðan sigur á Fsu, Snæfell varð að játa sig sigrað gegn Vestra í háspennuleik og ÍA tapaði stórt á móti Fjölni.   Borgnesingar stjórnuðu ferðinni Skallagrímur sigraði FSu í Borgarnesi, 95-88. Heimamenn höfðu yfirhöndina allan leikinn en gestirnir leyfðu þeim ekki…Lesa meira

true

Íbúafundur í Dölum á morgun

Íbúafundur, sem frestað var nýverið vegna veður í Dalabyggð, fer fram á morgun, miðvikudag klukkan 20 í Dalabúð. Á dagskrá fundarins er fjárhagsáætlun 2018-2021, kynning á ljósleiðaraverkefni og lýsing að tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Meðal annars verða kynnt áform um vindorkugarð í landi Hróðnýjarstaða. Eftir kaffihlé verða fyrirspurnir og umræður.Lesa meira

true

Gáfu Afdrepi ágóða jólabingós

Ungmennaráð Snæfellsbæjar stóð fyrir bingói fyrir síðustu jól. Heppnaðist það vel og var fullt út úr dyrum á sal Grunnskóla Snæfellsbæjar þegar bingóið var haldið. Ágóðan af bingóinu sem var tæpar 60 þúsund krónur afhenti Isabella Una Halldórsdóttir fyrir hönd ungmennaráðs Snæfellsbæjar félagsmiðstöðinni Afdrepi síðastliðinn fimmtudag. Það voru þær Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Berglind Magnúsdóttir starfsmenn…Lesa meira

true

Nýjustu Grundfirðingunum færðar gjafir

Það er orðin hefð fyrir því hjá Grundarfjarðarbæ að í janúar er nýjustu íbúum bæjarfélagsins fagnað og þeim færðar gjafir. Árið 2017 fæddust tíu börn í Grundarfirði og nýverið fór athöfn fram þar sem foreldrar mættu með börn sín. Það eru Leikskólinn Sólvellir, Grundarfjarðarkirkja, Heilbrigðisstofnun Vesturlands ásamt Grundarfjarðarbæ sem standa í sameiningu að gjöfunum en…Lesa meira

true

Vatnajökulsþjóðgarður gæti haft gildi fyrir allt mannkyn

Vatnajökulsþjóðgarður og hluti gosbeltisins verða tilnefnd á heimsminjaskrá UNESCO en Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, undirrituðu á sunnudaginn tilnefninguna fyrir hönd íslenska ríkisins. Athöfn sú fór fram við Hoffellsjökul. Umsóknin verður á morgun afhent heimsminjaskrifstofu UNESCO í París. Í tilnefningunni er áhersla lögð á rekbeltið, heita reitinn undir…Lesa meira

true

VR kynnir Kaupmáttarreiknivél heimila

Undanfarna mánuði hefur mikið verið fjallað um kaupmáttaraukningu á Íslandi síðustu ár sem eigi sér vart hliðstæðu. Þessi umfjöllun byggir á kaupmáttarvísitölu Hagstofunnar sem sýnir meðaltalsbreytingu á kaupmætti launafólks á íslenskum vinnumarkaði. VR hefur nú birt kaupmáttarreiknivél sem sýnir þróun kaupmáttar heimila að teknu tilliti til fjölskyldugerðar og húsnæðis. Þetta er í fyrsta skipti sem…Lesa meira