Fréttir

true

Hótel tilbúið í vor en íbúðablokk næsta haust

Hátt í fjörutíu iðnaðarmenn starfa nú við byggingu á nýju hóteli, verslunarrými og íbúðablokk við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi. Stefnt er á að hótelið verði tilbúið til móttöku fyrstu gesta í vor en að lokið verði við byggingu íbúðablokkarinnar síðari hluta þessa árs. Jóhannes Freyr Stefánsson hjá Ánaborg ehf. fer með verkstjórn á byggingarstað en…Lesa meira

true

Strætisvagn fauk útaf á Kjalarnesi

Laust fyrir klukkan 14 í dag fauk strætisvagn útaf veginum á Kjalarnesi, skammt sunnan við Hvalfjarðargöngin á móts við vigtarskúrinn. Vagninn var á áætlun frá Akranesi til Reykjavíkur þegar óhappið varð. Tíu farþegar voru í bílnum og þurfti að huga að meiðslum þeirra sem þó eru ekki talin alvarleg, samkvæmt upplýsingum Skessuhorns. Vagninn hélst á…Lesa meira

true

Þorgerður Laufey er nýr formaður Félags grunnskólakennara

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir hefur verið kjörin formaður Félags grunnskólakennara. Hún er starfandi grunnskólakennari í Árbæjarskóla í Reykjavík, fjögurra barna móðir og gift Hilmari Harðarsyni, formanni Samiðnar og FIT, félags iðn- og tæknigreina. Fimm voru í framboði til formanns og féllu atkvæði þannig að Þorgerður Laufey hlaut langflest atkvæði, eða 45,5%. Næst henni í atkvæðamagni voru…Lesa meira

true

„Alvarlegt ástand Vesturlandsvegar á Kjalarnesi“

„Við undirritaðir tökum eindregið undir áskorun bæjarstjórnar Akraness á samgönguyfirvöld þess efnis að þegar verði brugðist við alvarlegu ástandi Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og frekari fjármunum veitt til nauðsynlegra úrbóta varðandi tvöföldun vegarkaflans. Jafnframt minnum við á áður sendar ábendingar um að afar brýnt sé að lagfæra gatnamótin af Vesturlandsvegi inn á Grundartangasvæðið með hliðsjón af…Lesa meira

true

Baldur sennilega í siglingu á morgun

„Enn er unnið að lokafrágangi viðgerðar á aðalvél Baldurs en því miður eru litlar líkur á að sú vinna klárist fyrir mánudaginn [í dag] og er því líklegt að fyrsta ferð verði ekki fyrr en á þriðjudag.“ Þannig hljóðaði tilkynning sem Sæferðir settu inn á Facebook síðu sína á laugardaginn. Nú krossa menn fingur og…Lesa meira

true

ÍA tapaði tvisvar á Ísafirði

Skagamenn lögðu land undir fót og ferðuðust vestur á Ísafjörð um síðustu helgi og léku tvisvar gegn Vestra í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikirnir fóru fram í gær og í fyrradag. Báðum lauk þeim með sigri Vestra; 96-71 annars vegar og 93-80 hins vegar. Fyrri leikur liðanna var ekki mikið fyrir augað og heimamenn…Lesa meira

true

Vetrarþjónusta aukin á þjóðvegum landsins

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Vegagerðin hafa ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á ákveðnum köflum á þjóðvegum landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Markmiðið er að bæta umferðaröryggi og er þarna verið að bregðast við kröfu atvinnulífsins en ekki síst ferðaþjónustunnar sem er að fá til sín gesti allt árið. Undanfarið hafa…Lesa meira

true

Snæfellingar misstigu sig á ögurstundu

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn baráttuglöðum Gnúpverjum, 79-83, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Liðin fylgdust að fyrstu mínúturnar áður en gestirnir náðu fjögurra stiga forskoti. Snæfell jafnaði seint í leikhlutanum en Gnúpverjar skoruðu síðustu körfuna í fyrsta og leiddu með tveimur stigum að upphafsfjórðungnum loknum, 21-23. Snæfell komst…Lesa meira

true

Rúmar tvær milljónir í minningarsjóð Arnars Dórs

Alls söfnuðust rúmlega 2,1 milljón króna í minningarsjóð Arnars Dórs Hlynssonar, ungs Skagamanns sem lést langt fyrir aldur fram í september síðastliðnum. Sjóðurinn var stofnaður af fyrirtækinu Sansa, árgangi 1979 á Akranesi og Íþróttabandalagi Akraness. Það var Þórður Már Gylfason í Sansa sem hratt söfnuninni formlega af stað fimmtudaginn 11. janúar með áskorunum á Facebook.…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu eftir framlengingu

Einn leikur fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Það var viðureign Snæfells og Hauka í Stykkishólmi. Leikurinn var jafn og spennandi og úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Haukar höfðu sigur með 79 stigum gegn 76 stigum Snæfells. Haukar voru sterkari í upphafi og Snæfell fann ekki taktinn í vörninni.…Lesa meira