Fréttir

true

Íbúafundi í Dölum frestað

Íbúafundi sem boðað hafði verið til í Dalabúð í Búðardal í kvöld, miðvikudaginn 24. janúar, hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. „Að höfðu samráði við veðurfræðing á Veðurstofu Íslands hefur verið tekin ákvörðun um að fresta íbúafundinum,“ segir í tilkynningu frá Dalabyggð. Á fundinum var áformað að kynna fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2018 til 2021…Lesa meira

true

Þungfært á Fellsströnd og Skarðsströnd

Hálka eða snjóþekja er víða á vegum á Vesturlandi og sumsstaðar snjókoma. Þungfært er á Fellsströnd og á Skarðsströnd í Dölum. Með lægð fyrir austan land, sem þokast nær, er útlit fyrir vaxandi hríðarveður samfara NA hvassviðri eða stormi frá Eyjafirði, Öxnadalsheiði og Siglufjarðarvegi austur um á Austfirði. Verður hvað verst í kvöld og nótt…Lesa meira

true

Baldur lagður af stað

Á slaginu klukkan 15 í dag var Breiðafjarðarferjunni Baldur siglt í fyrstu áætlunarferðina, eftir viðgerð á aðalvélinni, með viðkomu í Flatey og stefnuna á Brjánslæk. Þaðan verður siglt að nýju klukkan 18 í kvöld. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari Skessuhorns áðan.Lesa meira

true

Minnt er á opinn fund um samgöngumál á morgun

Samgöngumál á Vesturlandi verða til umræðu á opnum fundi sem haldinn verður í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi í dag, á morgun miðvikudaginn 24. janúar. Á fundinum taka meðal annars til máls fulltrúar sveitarfélaga á Vesturlandi og samgönguráðherra. Samgöngumál brenna mjög á íbúum landshlutans og af þeim sökum beitti Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar sér…Lesa meira

true

Snjóflóð féll í Búlandshöfða

Snjóflóð féll í Búlandshöfða á ellefta tímanum í gærkvöldi. Um töluvert flóð var að ræða enda hafði snjóað mikið frá því um sexleytið þá um daginn. Töluverður snjór var í höfðanum eftir nóttina og þurfti bæði stóra hjólaskóflu frá TS vélaleigu, snjóblásara frá Vegagerðinni og moksturbílinn til að hreinsa. Einnig var töluverður snjór á veginum…Lesa meira

true

Sameinað félag heitir Hestamannafélagið Borgfirðingur

Þriðjudaginn 16. janúar síðastliðinn var endanlega gengið frá sameiningu hestamannafélaganna Faxa og Skugga. Þá um kvöldið var haldinn sameiginlegur framhaldsaðalfundur beggja félaganna þar sem ný lög voru samþykkt og kosið í stjórn og nefndir nýs félags. Efnt var til rafrænnar kosningar um nafn á nýja félagið. Hægt var að kjósa um nöfnin Borgfirðingur, Taktur, Fjöður,…Lesa meira

true

Baldur í áætlunarsiglingu í dag klukkan 15

Sæferðir hafa nú tilkynnt að Breiðafjarðarferjan Baldur mun sigla samkvæmt áætlun frá og með deginum í dag. Skipið siglir klukkan 15:00 frá Stykkishólmi og kl. 18:00 frá Brjánslæk. Þar með sér fyrir endan á nærfellt tveggja mánaða stoppi vegna vélarbilunar í skipinu. Í gær var verið að fínstilla olíudælu við vélina og tók Sumarliði Ásgeirsson…Lesa meira

true

Tengivagn fauk útaf á Kjalarnesi

Óhapp varð á Vesturlandsvegi á móts við Klébergsskóla á Kjalarnesi klukkan eitt í nótt. Vindhviða hafði feykt tengivagni vöruflutningabifreiðar útaf veginum. Ökumann sakaði ekki. Unnið var í morgun við að ná vagninum upp á veginn aftur og var umferð beint um hjáleið á meðan við Vallá.Lesa meira

true

Á fjórða tug fyrirmyndarfyrirtækja Viðskiptablaðsins eru á Vesturlandi

Samherji, Icelandair Group og Félagsbústaðir eru efst á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri, en úrslit voru kynnt í síðustu viku. Athygli vekur að nú eru tveir aðilar sem taka saman svipaðan eða sambærilegan lista. Creditinfo byggir könnun sína á svipuðum forsendum og Viðskiptablaðið en birtir niðurstöðuna viku síðar en Viðskiptablaðið. Í heildina…Lesa meira

true

Greiðslur farnar að berast sauðfjárbændum

Sauðfjárbændur sem voru rétthafar svæðisbundins stuðnings árið 2017 fengu í liðinni viku greidda viðbótargreiðslu vegna svæðisbundins stuðnings í samræmi við ákvörðun stjórnvalda um stuðning við sauðfjárbændur, vegna verðlækkunar á afurðum síðasta haust. Um er að ræða fyrri hluta aðgerða stjórnvalda af tveimur í samræmi við bráðabirgðaákvæði reglugerðar nr. 1183/2017 um stuðning við sauðfjárrækt. Til þessa…Lesa meira