
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2018 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1450 dýr á árinu, 1061 kú og 389 tarfa. Um er að ræða fjölgun um 135 dýr frá hreindýrakvóta fyrra árs. Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði…Lesa meira








