Fréttir

true

Valdís Þóra efst í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, situr í efsta sæti NSW Open mótsins í Ástralíu, en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Valdís lék frábært golf á fyrsta hring mótsins, kom í hús á 63 höggum sem er hvorki meira né minna en átta höggum undir pari. Annan hring fór hún á einu undir…Lesa meira

true

Gripið til ýtrustu varúðarráðstafana vegna mislinga

Grunur um fimmta tilfellið – Í viðbragðsstöðu um allt land Ákveðið hefur verið að grípa til ýtrustu varúðarráðstafana eftir að grunur vaknaði í gærkvöldi um fimmta tilfelli mislinga hér á landi. Þegar hafa fjórir greinst með mislinga, tvö börn og tveir fullorðnir. Sá fyrsti smitaðist erlendis en hinir í innanlandsflugi á Íslandi um miðjan febrúar.…Lesa meira

true

Færði Krabbameinsfélagi Akraness peningagjöf

Soffía G. Þórðardóttir ljósmóðir fagnaði nýverið 70 ára afmæli sínu. Á afmælisdaginn afþakkaði hún gjafir en hafði þess í stað söfnunarkassa og tók við frjálsum framlögum. Alls söfnuðust í kassann 208.500 kr., sem Soffía ákvað að láta renna til Krabbameinsfélags Akraness og heiðra þannig minningu föður síns, Þórðar Jónssonar og systur sinnar, Agnesar Sigrúnar Þórðardóttur,…Lesa meira

true

Eldri borgarar í Grundarfirði á fullu í ræktinni

Félag eldri borgara í Grundarfirði og Grundarfjarðarbær hafa komið af stað verkefni um heilsueflingu fyrir íbúa sem eru 60 ára og eldri eða búa við örorku. Verkefnið er í samvinnu við Grundarfjarðardeild Rauða Kross Íslands og með aðkomu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og fleiri aðila. Boðið er upp á tíma í líkamsræktinni tvisvar í viku og svo…Lesa meira

true

Íbúaþing framundan í Dölum

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að boðað verði til íbúaþings í Tjarnarlundi í Saurbæ sunnudaginn 17. mars næstkomandi. Skipulag þingsins verður með þeim hætti að allir geti tekið þátt og sjónarmið allra komi fram. Boðið verður upp á léttan hádegisverð á þinginu. Ítarleg dagskrá og tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.Lesa meira

true

Borgnesingar fallnir

Skallagrímur heimsótti Val í fallbaráttuslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga áfram möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Valsmenn gátu hins vegar með sigri fellt Skallagrím og þar með tryggt sér áframhaldandi veru í Domino‘s deildinni. Eftir nokkuð jafnan og spennandi fyrri…Lesa meira

true

Töluverðar breytingar á golfreglum

Nýjar og breyttar golfreglur tóku gildi um áramótin síðustu. Breytingarnar eru töluvert margar, eða samtals 45 talsins og miða að því að nútímavæða reglur leiksins. Golfklúbburinn Oddur í Garðabæ hefur tekið saman þær tuttugu reglubreytingar sem helst hafa áhrif á leik kylfinga. Við þá samantekt er stuðst hér. Tuttugu helstu breytingarnar eru eftirfarandi: Leitartími er…Lesa meira

true

Jósefina Morell undirbýr sýningu í Safnahúsi

Laugardaginn 16. mars næstkomandi mun listakonan Josefina Morell opna listsýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar mun hún sýna ýmsar gerðir list- og nytjalistar sem hún vinnur að um þessar mundir. Þema sýningarinnar verður endurnýting og í raun nýtni og þar mun gefa að líta áhugaverð verk. Jósefina hefur getið sér gott orð fyrir listsköpun…Lesa meira

true

Kjötiðnaðarmaður sem söðlaði um og fór í matsveinanám

Ómar Bjarki Hauksson er matráður í Brákarhlíð í Borgarnesi. Hann var býsna brattur síðastliðinn föstudagsmorgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit við í eldhúsinu hjá honum. Um síðustu áramót voru fimm ár frá því Ómar tók til starfa sem matráður í Brákarhlíð en áður hafði hann lengst af unnið við kjötiðn. Hann er kjötiðnaðarmeistari að mennt og…Lesa meira