Fréttir

true

Búist við fjölmennum fundi í kvöld

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í kvöld boðað til fundar með vestlenskum bændum á Hótel Hamri í Borgarnesi. Tilefnið er frumvarp sem hann hefur lagt fram og hægt er að lesa á samráðsgátt stjórnvalda. Snýst frumvarpið um innflutning á m.a. ófrystu kjöti. Með frumvarpinu telur ráðherra sig vera að bregðast við dómum Hæstaréttar…Lesa meira

true

Milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar

Íslenska ríkið var í Landsrétti á föstudag dæmt til að greiða manni samtals fjórar og hálfa milljón króna í bætur vegna fjártjóns sem hann varð fyrir í kjölfar ólögmætrar uppsagnar úr starfi aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Héraðsdómur hafði áður fallist á að ákvæði ráðningarsamnings um eins mánaðar uppsagnarfrest á reynslutíma ætti ekki við um…Lesa meira

true

Berghlaupið í Hítardal fær nafnið Skriðan

Hið mikla berghlaup sem gekk fram úr Fagraskógarfjalli í Hítardal 7. júlí síðasta sumar á að fá nafnið Skriðan. Örnefnanefnd hefur fjallað um og veitt umsögn sína um skriðuna. Áður hafði nefndin samþykkt að vatnið sem myndaðist við ofanvert framhlaupið, þar sem það stíflaði Hítará, fengi nafnið Bakkavatn. Í bréfi Örnefnanefndar til Borgarbyggðar segir að…Lesa meira

true

Fjörug bollusala eldri borgara í Grundarfirði

Eldri borgarar í Grundarfirði bökuðu óhemju magn af rjómabollum um helgina enda bolludagurinn í dag, mánudaginn 4. mars. Það er því ljóst að Grundfirðingar urðu ekki uppiskroppa með bollur á þessum hátíðisdegi. Þónokkrir tóku forskot á sæluna og var ófáum bollum sporðrennt í gær þegar bollusalan fór fram.Lesa meira

true

Misstu heimamenn fram úr sér eftir hléið

Snæfellingar heimsóttu Selfyssinga í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir fremur jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn að síga fram úr í þeim síðari og unnu að lokum örugglega, 73-55. Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks. Um miðjan fyrsta leikhluta, í stöðunni 8-6, tóku Selfyssingar góða rispu þar sem þeir skoruðu sjö…Lesa meira

true

Að duga eða drepast hjá Borgnesingum

Skallagrímur tapaði gegn Þór Þ. þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru gestirnir einfaldlega sterkari í þeim síðari og fóru að lokum með sigur af hólmi, 74-89. Borgnesingar höfðu yfirhöndina í framan af fyrsta leikhluta en Þórsarar voru aldrei langt undan. Seint…Lesa meira

true

Hjónanámskeið á hringferð um landið

Í ár eru 23 ár síðan byrjað var að bjóða upp á hjóna- og sambúðarnámskeið í Hafnarfjarðarkirkju. Á þessum árum hafa námskeiðin verið haldin margsinnis um allt land og á Norðurlöndum. Aðsóknin hefur verið jöfn og mikil allan tímann, að sögn Þórhallar Heimissonar sem stendur fyrir námskeiðunum. Nú í byrjun árs höfðu tíu þúsund pör…Lesa meira

true

Leikur í Lengjubikarnum spilaður í Ólafsvík

Með tilkomu gervigrass á knattspyrnuvöllinn í Ólafsvík hefur verið hægt að æfa og leika knattspyrnu í sveitarfélaginu mun lengur en áður var unnt. Því var fyrsti heimaleikur ársins hjá Víkingi í Lengjubikarinum spilaður á laugardaginn í hæglætisveðri. Þróttur Reykjavík sótti Víking heim, en bæði lið leika í riðli 2 í A deildinni. Leikurinn var bráðfjörugur…Lesa meira

true

Margir á ferðinni í vorblíðunni í gær

Ekki var laust við að Vestlendingar fyndu ilm vors liggja í loftinu í gær, laugardag. Veðrið var með besta móti miðað við árstíma, meðal annars við Langasand á Akranesi þar sem þessi mynd var tekin um nónbil. Fjölmargir voru þá á ferðinni og nutu blíðunnar. Í verslunum seldist grillkjöt jafnvel upp á sama tíma og…Lesa meira

true

Metfjöldi á háskóladeginum – stefnan sett á Akranes á fimmtudaginn

Háskóladagurinn var haldinn í þremur háskólum í Reykjavík í gær. Talið er að metfjöldi hafi sótt viðburðina, en háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra sjö háskólanna á Íslandi. Þar gátu áhugasamir kynnt sér yfir 500 námsleiðir sem í boði eru hér á landi. „Frábær stemning var í öllum þremur skólunum sem kynningin fór fram. Greinilegur áhuga er…Lesa meira