Fréttir

true

Fyrsti leikur ársins á morgun á gervigrasinu í Ólafsvík

Víkingur Ó. mætir Þrótti R. á gervigrasinu á Ólafsvíkurvelli á morgun, laugardaginn 2. mars. Verður þetta fyrsti leikur ársins á gervigrasinu í Ólafsvík, en það var formlega tekið í notkun þegar Víkingur Ó. sigraði Leiknir R. í 1. deild karla 13. júní síðasta sumar. Liðið sigraði sex leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði tvisvar á…Lesa meira

true

Basl í íslenskum flugrekstri

Skúla Mogensen eiganda WOW air tókst ekki að ljúka samningi við Indigo Partners um endurfjármögnun félagsins, en til stóð að ljúka þeim viðræðum eigi síðar en nú um mánaðamótin. Í tilkynningu frá WOW sem send var út seint í gærkvöldi kemur fram að viðræður muni engu að síður halda áfram. Vonast er til að þeim…Lesa meira

true

Öryggi ógnað með aðgerðaleysi ráðherra í sjúkraflutningamálum

Vegna deilu heilbrigðisráðuneytis við Rauða kross Íslands hafa engir nýir sjúkrabílar verið keyptir til landsins frá árinu 2015. Sjúkrabílaflotinn er af þeim sökum orðinn alltof gamall og ótraustur, eins og ítrekað hefur komið fram í fréttum Skessuhorns. Guðjón S Brjánsson alþingismaður og fyrrum forstjóri HVE vekur athygli á alvarlegri stöðu sjúkraflutningamála í aðsendri grein hér…Lesa meira

true

Skaginn 3X styrkir stjórnendateymi sitt

Skaginn 3X á Akranesi hefur ráðið tvo nýja lykilstjórnendur til starfa. Baldvin Johnsen er nýr fjármálastjóri og Alda Hlín Karlsdóttir mun leiða sölu-og markaðssvið félagsins. Baldvin er fyrrverandi fjármálastjóri og síðar framkvæmdastjóri FrigoCare í Noregi, dótturfélags Samskipa. Hann er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Alda Hlín Karlsdóttir mun stýra sölu- og markaðsmálum félagins í…Lesa meira

true

Krabbameinsfélagið selur sokka í mars

Í dag, föstudaginn 1. mars, hefst sala á nýjum Mottumars-sokkum í verslunum um land allt og í vefverslun Krabbameinsfélagsins; krabb.is. Þá opnar félagið síðdegis í dag nýtt vefsvæði fyrir karla, karlaklefinn.is, og ljósmyndasýningin Meiri menn verður opnuð á sex stöðum á landinu, þó hvergi á Vesturlandi. Mottumarssokkarnir nú eru hannaðir af Önnu Pálínu Baldursdóttur, nemanda…Lesa meira

true

Sirkus Íslands með sýningar í Borgarnesi og Ólafsvík um helgina

Sirkus Íslands mun nú í vikunni frumsýna nýja sýningu sem hefur verið í vinnslu í vetur. „Sýningin er þó ekki sýnd í Sirkustjaldinu Jöklu eins og undanfarin sumur, heldur setjum við stefnuna á félagsheimili og íþróttasali um land allt. Þetta er enn eitt skrefið í að gera Sirkus Íslands að Sirkus allra landsmanna. Fyrsta sýningin…Lesa meira

true

VLFA samþykkir að kjósa um verkfall

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hefur ákveðið að láta fara fram atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun meðal félagsmanna sinna sem heyra undir kjarasamning sem félagið á við Samtök atvinnulífsins vegna veitinga- og gistiþjónustu og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi. Eins og kunnugt er á félagið samflot með þremur öðrum verkalýðsfélögum; VLFG, Eflingu og VR í kjaraviðræðum við atvinnurekendur, en…Lesa meira

true

Merking og hnitsetning miltisbrandstilfella

Allt frá árinu 2004 ferðaðist Sigurður Sigurðarson dýralæknir um landið, leitaði heimilda og merkti staði þar sem þekktar miltisbrandsgrafir er að finna. Þetta eru staðir sem dýr sem drápust úr miltisbrandi voru grafin. Sýkillinn sem veldur miltisbrandi myndar dvalargró og getur í aldir lifað í jörðinni og þannig valdið nýju smiti komist hann upp á…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið kosið annað besta

Nýverið var tilkynnt val á hlaupurum ársins og hlaupum ársins 2018 hjá hlaup.is. Snæfellsjökulshlaupið hafnaði þar í öðru sæti í flokki utanvegahlaupa og er það góð viðurkenning fyrir þau hjón Rán Kristinsdóttur og Fannar Baldursson sem hafa staðið fyrir hlaupinu í nokkur ár. Í því er hlaupið yfir Jökulshálsinn frá Arnarstapa og til Ólafsvíkur. Árið…Lesa meira

true

Benda á samlegð við að staðsetja Þjóðgarðastofnun við hlið LMÍ

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar er einhuga um að óska eftir því við Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra að höfuðstöðvum nýrrar stofnunar, Þjóðgarðastofnunar, verði fundinn staður á Akranesi. Jafnframt er stungið upp á því að ný stofnun verði starfrækt með samlegð við Landmælingar Íslands sem verið hafa með aðsetur á Akranesi í rétta tvo áratugi. Í ályktun sem bæjarstjórn…Lesa meira