Fréttir

true

Heimila verulega gjaldskrárhækkun Íslandspósts

Póst- og fjarskiptastofnun birti í gær ákvörðun sína þar sem samþykkt er erindi Íslandspósts ohf. um 8-11% hækkun á gjaldskrá félagsins innan einkaréttar. „Ákvörðunin byggir á áætlun ÍSP um umtalsverða magnminnkun á pósti innan einkaréttar á árinu 2019 eða allt að 17%. Hækkunin mun hins vegar ekki duga til að vega upp á móti áætluðu…Lesa meira

true

Óvenju mikið er um smitsjúkdóma í hrossum erlendis

Nokkrir sjúkdómar herja nú á hross í nágrannalöndum okkar og hafa ráðamenn áhyggjur af að þeir geti borist hingað til lands. Eiga þessir sjúkdómar það sammerkt að hafa aldrei borist til Íslands og gætu hver um sig skapað alvarlega ógn við íslenska hrossastofninn og alla hestatengda starfsemi hér á landi. Dýravelferðarsvið Matvælastofnunar hefur gert samantekt…Lesa meira

true

Voru stungnar af í síðari hálfleik

Skallagrímskonur þurftu að játa sig sigraðar gegn Val þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Borgarnesi. Valur hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en Skallagrímsliðið fylgdi þeim eins og skugginn. Skallagrímskonur voru fáliðaðar, með aðenis sjö leikmenn á skýrslu og á endanum kom það í bakið á þeim. Þær…Lesa meira

true

Stórsigur Snæfellskvenna

Snæfell vann stórsigur á Breiðabliki, 93-56, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur voru sterkari frá fyrstu mínútu. Þær komust í 11-1 snemma í fyrsta leikhluta. Blikar minnkuðu muninn í fjögur stig áður en Snæfell tók góðan sprett og 14 stiga forystu áður en leikhlutinn var…Lesa meira

true

Hellisbúinn verður sýndur á Akranesi í næstu viku

Körfuknattleiksfélag Akraness, í samvinnu við Theater Mogul, stendur fyrir sýningu á hinni geysivinsælu sýningu Hellisbúanum í Tónbergi á Akranesi föstudaginn 8. mars næstkomandi. Um er að ræða fjáröflun fyrir 7.-9. flokk drengja hjá ÍA. Mun allur ágóðinn af miðasölu sýningarinnar renna til æfingaferðar körfuknattleiksdrengjanna til Spánar. Hellisbúinn er einn vinsælasti einleikur heims og hefur verið…Lesa meira

true

Slökkviliði Snæfellsbæjar færðar gjafir

Síðastliðinn sunnudag hélt Lionsklúbbur Ólafsvíkur fund í Slökkvistöð Snæfellsbæjar. Tilefnið var að afhenda slökkviliðinu gjafir, svo sem hitamyndavél, brunndælu, vasaljós og fleira. Vasaljósin sem klúbburinn gaf slökkviliðinu eru ætluð til þess að lýsa í sjáöldur fólks á vettvangi óhappa. Vatnsdælan er mjög öflug en hún dælir 600 lítrum á mínútu í fjögurra metra hæð. Þess…Lesa meira

true

ÍA valtaði yfir Stjörnuna

ÍA vann stórsigur á Stjörnunni, 6-0, þegar liðin mættust í Lengjubikar karla á þriðjudagskvöld. Leikið var í Kórnum í Kópavogi. Skagamenn mættu ákveðnir til leiks og voru betra lið vallarins allan fyrri hálfleikinn. Stjarnan skapaði sér nokkur færi en alltaf voru Skagamenn mun hættulegri. Gonzalo Zamorano og Þórður Þorsteinn Þórðarson skoruðu fyrir ÍA, auk þess…Lesa meira

true

Rympa á ruslahaugnum frumsýnd í Þinghamri á sunnudaginn

Leikdeild Umf. Stafholtstungna í Borgarfirði hefur að undanförnu æft leik- og söngverkið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egilsdóttur. Sýnt verður í félagsheimilinu Þinghamri. Verkið er barna- og fjölskylduleikrit sem gerist á ruslahaug þar sem Rympa býr ásamt honum Volta sínum. Óhætt er að segja að Rympa sé persónugervingur óæskilegs félagsskapar og finnst henni hrekkir og…Lesa meira

true

Skildi börn eftir í bíl í gangi

Lögreglumenn á Vesturlandi voru við skólaeftirlit í vikunni sem leið. Á Akranesi komu lögreglumenn að ökumanni sem hafði skilið bíl eftir í gangi með tvö börn innanborðs. Lögregla segir að slíkt eigi ekki að viðgangast og minnir á að það er klárt brot á umferðarlögum að skilja bíl eftir í gangi. Þá bárust lögreglu ábendingar…Lesa meira

true

Ungt listafólk í Borgarbyggð undirbýr metnaðarfulla sýningu

Listakonan Michelle Bird í Borgarnesi fór af stað með nýtt verkefni í byrjun árs þar sem hún opnaði skapandi vinnustofu fyrir unga listamenn í Borgarbyggð. Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði SSV. „Michelle er að bjóða ungu fólki aðstoð við að skapa list og finna sinn farveg í því. Hún hafði samband við okkur og við…Lesa meira