Fréttir

true

Tók þátt í þróun byggðarinnar í Grundarfirði alla tíð

Pálína Gísladóttir í Grundarfirði fagnaði 90 ára afmæli sínu ásamt fólkinu sínu í lok janúar. Pálínu, eða Pöllu, þekkja margir Grundfirðingar, enda hefur hún búið þar stærstan hluta ævinnar. Í afmæli Pálínu gaf hún börnum sínum æskuminningar sem hún hefur safnað og skráð með aðstoð Gunnars Kristjánssonar tengdasonar síns og fleiri. Í Skessuhorni sem kom…Lesa meira

true

Funda í kvöld um hrossarækt

Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda, og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur eru um þessar mundir á ferð um landið og halda fræðslufundi um málefni hrossaræktarinnar. Helstu málefni sem ber á góma eru þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt, dómsskalinn, þ.e. þróun og betrumbætur, nýir vægisstuðlar eiginleikanna auk málefna Félags hrossabænda. Fundur verður haldinn í Borgarnesi í kvöld, miðvikudaginn 27.…Lesa meira

true

Hafa það markmið að segja helst ekki nei við verkefnum

Í desember á síðasta ári voru 20 ár liðin frá því bræðurnir Hafþór og Sævar Benediktssynir stofnuðu fyrirtækið BB & synir í Stykkishólmi. Af því tilefni heimsótti blaðamaður Skessuhorns  fyrirtækið í liðinni viku og ræddi við Hafþór um starfsemina síðustu tvo áratugi. Hann býður blaðamanni inn á skrifstofu fyrirtækisins sem er staðsett í gámi sem…Lesa meira

true

Guðjón og Ágústa Íslandsmeistarar í keilu

Guðjón Gunnarsson og Ágústa K. Jónsdóttir úr ÍA urðu í gærkvöldi Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu með forgjöf. Sigurður B. Bjarkason úr ÍR hafnaði í öðru sæti í karla flokki og Svavar Þór Einarsson, einnig úr ÍR, varð þriðji. Í kvennaflokki varð Geirdís H. Kristjánsdóttir úr ÍR önnur og Jóna Gunnarsdóttir úr KFR hreppti bronsið. Alls…Lesa meira

true

Lækkaður hámarkshraði á Borgarbraut í Borgarnesi

Íbúar í Borgarnesi hafa tekið eftir því að búið er að setja upp skilti sem segja að hámarkshraði hafi verið lækkaður um Borgarbraut, aðalgötu bæjarins, frá miðbæ og niðurúr. Nú er einungis leyfilegt að aka á 30 km/klst hraða um götuna í stað 50 km hraða áður. Breytingin hefur ekki verið kynnt opinberlega að öðru…Lesa meira

true

Tækifæri í opinberum störfum á landsbyggðinni

Landmælingar Íslands boðuðu til málþingsins „Ríkisstofnun úti á landi – búbót eða basl?“ á Gamla kaupfélaginu á Akranesi síðastliðinn föstudag. Málþingið var haldið í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá flutningi Landmælinga frá Reykjavík til Akraness. Markmið með málþinginu var að rýna í hvað það þýðir að hafa ríkisstofnun utan höfuðborgarsvæðisins. Niðurstaða málþingsins…Lesa meira

true

Þrjú heimafyrirtæki buðu í jarðvegsframkvæmdir

Hjá Ríkiskaupum hafa verið opnuð tilboð í jarðvinnu vegna fyrsta áfanga byggingar Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi í Snæfellsbæ. Þrjú tilboð bárust í verkið, öll frá fyrirtækjum úr sveitarfélaginu. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 27,3 milljónir króna og reyndust öll tilboðin undir henni. Langlægsta boð átti Stafnafell ehf, eða rétt tæpar 15 milljónir króna. TS Vélaleiga ehf. bauð…Lesa meira

true

Frá aðalfundi Kúabændafélagsins Baulu

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu á Vesturlandi var haldinn í Borgarnesi í gær. Á dagskrá voru almenn aðalfundarstörf auk erinda frá gestum. Gestir voru Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda og Baldur Samúelsson ráðunautur hjá RML, sem jafnframt veitti verðlaun fyrir góðan árangur í ræktun og nyt kúa á starfssvæðinu. Að sögn Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur formanns Kúbændafélagsins Baulu…Lesa meira

true

Hafa opnað náms- og stuðningsver í FVA

Nýtt náms- og stuðningsver var nýverið opnað í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Námsverið er hluti af verkefni sem styrkt var af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu í þeim tilgangi að sporna við brotthvarfi úr námi. Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við skólann, á hugmyndina að námsverinu og hefur hún séð um að koma því á laggirnar.…Lesa meira

true

Trúboðar vildu hitta að máli vantrúaða Borgarfirðinga

Síðastliðinn fimmtudag var Lögreglunni á Vesturlandi tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Borgarfirði. Þar væru menn á ferð sem leituðu að fólki sem talaði pólsku eða ensku. Þótti íbúum það undarlegt og gerðu lögreglu viðvart. Lögregla kannaði málið snarlega og hitti fyrir umrædda menn. Kom þá á daginn að þar voru á ferðinni Vottar Jehóva, sem…Lesa meira