
Kynningarfundur um lög um áætlað samþykki til líffæragjafar var haldin á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi í morgun. Kynningaátakið er með heitinu „Við gefum líf.“ Því er ætlað að kynna nýja löggjöf fyrir starfsfólki á heilbrigðisstofnunum. Kynningunni var varpað til annarra heilbrigðisstofnana á Vesturlandi í gegnum Netið. Ný lög um líffæragjafir taka gildi 1. janúar næstkomandi.…Lesa meira








