Fréttir

true

Tónlistarskólarnir á Vesturlandi byrjaðir vetrarstarfið

Þegar kemur að því að skapa stemningu á viðburðum er alltaf gott og gilt að hringja í tónlistarfólk. Það skapar andrúmsloft sem hentar hverjum stað og stund, kryddar samkvæmi og ekki er verra að tónlistarfólkið fær um leið æfingu í að koma fram, því einhvers staðar verða allir tónlistarmenn að byrja. Án tónlistarskóla væru jafnframt…Lesa meira

true

Læknislaust í Grundarfirði

Veikir Grundfirðingar gripu í tómt er þeir ætluðu að leita læknis á mánudagsmorgun, en þá var enginn læknir á heilsugæslustöðina. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að læknir er í Grundarfirði á virkum dögum en um helgar er enginn læknir í bæjarfélaginu og bakvaktir í höndum læknis í Ólafsvík. Eitthvað hefur skipulagið riðlast þessa vikuna því…Lesa meira

true

Þykir sauðfjárbændur á Íslandi fá of lítið fyrir sinn snúð

Raminta Freimanaite, 25 ára dýralæknir frá Litháen, kom til Íslands í maí síðastliðnum til að kynnast íslenskum búskaparháttum en sjálf starfar hún á blönduðu búi í Litháen. Raminta dvaldi hjá Höllu Steinólfsdóttur og Guðmundi Gíslasyni og fjölskyldu í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í einn mánuð og fylgdist með íslenskum sauðburði. „Ég vildi afla mér víðtækari þekkingar…Lesa meira

true

Fimmtán ára samgönguáætlun kynnt

Tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra að samgönguáætlun 2019-2033 hefur nú verið gerð opinber. Samkvæmt henni er næstu fimmtán árum skipt niður í þrjú framkvæmdatímabil. Árin 2019-2023 er fyrsta tímabil, 2024-2028 annað og 2029-2033 þriðja tímabilið. Samgönguáætlun er þannig ætlað að verða hluti af; „heildstæðri samþættri stefnu í samgöngumálum, fjarskiptamálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og gerð…Lesa meira

true

Frumvarp sem einfalda á álagningu veiðigjalds í sjávarútvegi

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um veiðigjald. Meginmarkmið frumvarpsins er að færa álagningu veiðigjalds nær í tíma þannig að gjaldtakan verði meira í takt við afkomu sjávarútvegsfyrirtækja hverju sinni og að stjórnsýsla með álagningu veiðigjalds verði einfaldari, skilvirkari og áreiðanlegri. Gjaldhlutfall veiðigjalds verður óbreytt frá gildandi…Lesa meira

true

Haust í veðrinu næstu daga

Það haustar og ber veðráttan þess merki. Á morgun, fimmtudaginnm, er spáð vestlægri átt, 5-10 m/s með bjartviðri suðaustan- og austanlands. Annars skýjað og skúrir eða él. Hiti verður á bilinu 2 til 8 stig og mildast syðst. Á föstudag er útlit fyrir hvassa suðvestanátt með rigningu og talsverðri úrkomu hér sunnan- og vestanlands. Hiti…Lesa meira

true

Segja ljóst að ímynd OR hefur beðið hnekki

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum í gær ályktun vegna mála innanhúss hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga fyrirtækisins. „Bæjarstjórn Akraness harmar þá stöðu sem upp er komin í starfsmannamálum Orkuveitu Reykjavíkur og leggur áherslu á að nýhafin rannsókn á vinnustaðamenningu innan fyrirtækisins verði til lykta leidd með fagmannlegum hætti og úrbætur gerðar. Í eigendastefnu…Lesa meira

true

Minna á hversu einstök framkvæmd Hvalfjarðargöngin var

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í gær samhljóða ályktun þar sem minnt er á hversu einstæð framkvæmd göng undir Hvalfjörð var á sínum tíma. Jafnframt er Speli þakkað framlag fyrirtækisins til framfara á sviði samgangna. Ályktun bæjarstjórnar Akraness er svohljóðandi í tilefni þess að Hvalfjarðargöngum verður skilað til ríkisins og gjaldtöku hætt: „Bæjarstjórn Akraness…Lesa meira

true

Karfan er handan við hornið

Bið körfuknattleiksaðdáenda eftir Íslandsmótinu í körfuknattleik er senn á enda. Keppnistímabilið hefst á næstu dögum, fyrst í neðri deildunum en síðan í Domino‘s deildum karla og kvenna í næstu viku. Vestlendingar eiga sex lið í Íslandsmótinu að þessu sinni eins og undanfarin ár; Skallagrímur sendir lið til keppni í Domino‘s deildum karla og kvenna, Snæfell…Lesa meira

true

Settust að á Jörva í Haukadal og opnuðu leirverkstæði

Hjónin Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Reynir Guðbrandsson fluttu úr Hafnarfirði í Dalina fyrir fjórum árum og hafa nú byggt sér íbúðarhús og leirverkstæði á Jörva í Haukadal. Bjarnheiður tók vel á móti blaðamanni Skessuhorns fyrr í mánuðinum og sagði frá lífinu í Dölunum, störfunum á leirverkstæðinu og framkvæmdunum á Jörva. „Í Hafnarfirði unnum við bæði krefjandi…Lesa meira