Fréttir

true

Tímamótasamkomulag sem tryggir jafnræði

„Aðalstjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms ásamt meistaraflokksráðum karla og kvenna og yngri flokka ráði hafa undirritað samkomulag þess efnis að jöfn skipting verði á öllu styrktar- og samstarfssamningum sem deildin aflar hverju sinni.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. „Með þessu er tryggt jafnræði milli karla og kvennaliða Skallagríms sem og yngri flokka þegar kemur að…Lesa meira

true

Gjaldtöku hætt eftir hádegi á morgun

Rekstraraðilar Hvalfjarðarganga hafa lokið gerð samnings við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið um uppgjör vegna afhendingu ganganna til ríkisins. Gert er ráð fyrir því að innheimtu veggjalda í göngin verði því hætt skömmu eftir kl. 13:00 á morgun, föstudagin 28. september. Göngin verða síðan formlega afhent ríkinu og samningar undirritaðir við norðurmunna ganganna…Lesa meira

true

Styttist í Sauðamessu í Borgarnesi

Laugardaginn 6. október verður blásið til árlegrar Sauðamessu í Borgarnesi í þrettánda skipti. Þá geta messugestir gert sér glaðan dag þar sem allir ættu að finna sér eitthvað skemmtilegt við hæfi. Hlédís Sveinsdóttir hefur verið á fullu að skipuleggja herlegheitin. „Þetta er allt saman að koma, og hátíðin er að taka á sig mynd,“ segir…Lesa meira

true

Færðu Bókasafni Akraness fjölnota poka að gjöf

Nú á mánudaginn komu félagar í Soroptimistaklúbbi Akraness færandi hendi á Bókasafn Akraness með 20 fjölnota burðarpoka í tilefni af plastpokalausum september. „Þar sem valdefling stúlkna og kvenna, sjálfbærni og náttúruvernd standa hjarta okkar nærri ákváðum við að láta gott af okkur leiða í plastpokalausum september. Færum við því Bókasafni Akranes 20 margnota poka til…Lesa meira

true

Góður gangur í viðbyggingu við Fellaskjól

Mikill og góður gangur er í viðbyggingu við Dvalarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði en verið er að stækka heimilið og bæta við sex nýjum hjúkrunarrýmum. Verða þau vel tækjum búin og eiga eftir að gjörbylta vinnuaðstöðu starfsfólks og íbúa. Ágúst Jónsson var að vinna í rafmagninu þegar fréttaritari leit inn og mátti varla vera að því…Lesa meira

true

Mótmæla lokun VÍS

Vegna lokunar umboðsskrifstofa VÍS hefur bæjarstjórn Akraness samþykkt svohljóðandi: „Bæjarstjórn Akraness harmar og mótmælir kröftuglega ákvörðun VÍS um lokun starfsstöðva félagsins á landsbyggðinni. Bæjarstjórn Akraness skorar á fyrirtækið að endurskoða ákvörðun sína.“ Undir ályktunina rita allir fulltrúar í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar.Lesa meira

true

Borgarbyggð endurskoðar tryggingasamning sinn við VÍS

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær tók ráðið undir bókun Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi frá haustþingi SSV 21. september síðastliðinn þar sem lýst var vonbrigðum með þér fréttir frá VÍS að loka á öllum starfsstöðvum á Vesturlandi um næstu mánaðamót. Í ályktun SSV sagði m.a: „Þessi ákvörðun er óásættanleg fyrir viðskiptavini og starfsfólk VÍS á…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á nokkrum stöðum síðdegis í dag

Veitur tilkynntu það síðdegis í gær að fyrirtækið mun eftir hádegi í dag vinna við tengingu hitaveitu við Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi. Vegna þessa verður lokað fyrir heita vatnið hjá hluta íbúa frá kl. 14:00-22:00 í kvöld. Þessi svæði verða án vatns: Vesturgata 105-146 Ægisbraut 7-11 Brekkubraut 1-13 Heiðarbraut 40-65 Stillholt 2-17 Vogabraut 1-3…Lesa meira

true

Sveitarfélög eru of mörg og fámenn

Landsþing Sambands íslenskara sveitarfélaga fer nú fram á Akureyri. Í ávarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra sveitarstjórnarmála flutti, ræddi hann meðal annars um stærð og fjölda sveitarfélaga. Þau voru um 200 árið 1990 en eru nú 72. „Við stöndum frammi fyrir því að mörg sveitarfélaganna eru fámenn. Og sú spurning gerist áleitnari hvort þau séu…Lesa meira

true

Hálkublettir á fjallvegum

Hálka eru nú á Bröttubrekku en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Þá eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði, Klettshálsi, Hálfdáni og Öxnadalsheiði. Á Norðausturlandi eru hálkublettir í Mývatnssveit, Mývatnsöræfum og Dettifossvegi. Snjóþekja er á Möðrudalsöræfum og hálkublettir á Fjarðarheiði. Loks minnir Vegagerðin á að þessa vikuna og fram í þá næstu verður unnið við…Lesa meira